Kylfingar Keilis í USA
Kylfingar Keilis í USA
Það eru sex kylfingar frá Keili sem taka þátt í háskólagolfinu í USA með skólaliðum sínum. Í ár eru mörg og spennandi mót framundan hjá þeim um öll Bandaríkin.
Háskólagolfið hefst að nýju í febrúar og munum við geta lesið um hvernig krökkunum gengur hér á keilir.is. Einnig verður hægt að fylgjast með mótunum inn á golfstat.com.
Gísli Sveinbergsson leikur með Kent State háskólaliðinu og hefur keppni 27. febrúar. Hann er að læra viðskipti fyrir íþróttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir leikur með Fresno state háskólaliðinu og hefur einnig leik þann 27. febrúar í Kaliforníu. Hún útskrifast sem hreyfifræðingur í vor.
Rúnar Arnórsson er í háskólanum í Minnesota og er að læra sálfræði. Fyrsta mótið hjá Rúnari er 10. febrúar í Florida.
Gunnhildur Kristjánsdóttir er í Elon skólanum og er fyrsta mótið hjá liðinu hennar á Hawaí þann 26. febrúar. Hún er að læra alþjóðaviðskipti og tölvufræði í sínum skóla.
Sigurlaug Rún Jónsdóttir hefur leik þann 10. febrúar í Florida. Hún leikur með liði Drake skólans í Iowa. Í skólanum leggur hún stund á stærðfræðinám.
Helga Kristín Einarsdóttir er í háskólanum í Albany í New York. Þar er hún í námi til að læra að verða endurskoðandi. Háskólaliðið hefur keppni um miðjan mars í Florida.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
Stækkun golfskála Keilis
Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00

