15/06/2017

US Open dagar

US Open dagar

Dagana 15-19 júní verða sérstakir US open dagar í golfverslun Keilis. Opna bandaríska meistaramótið hófst á Erin Hills vellinum í Wisconsin í dag. Mikil spenna er fyrir mótinu, en það er annað risamót ársins af fjórum. Sigurvegari síðasta árs, Dustin Johnson er að sjálfsögðu með ásamt Jordan Spieth og öllum hinum risanöfnunum. Við munum að sjálfsögðu sýna mótið í golfskála Keilis og um að gera og líta við hjá okkur. Golfverslun Keilis hefur sett upp US Open tilboð til þeirra sem hafa áhuga. Til 19. júní eru allir Under Armour skór á 25% afslætti og eins og margir vita spilar Jordan Spieth í Under Armour. Síðan er í boði Titleist Prov1 og Prov1x (12 boltar) í takmörkuðu upplagi á aðeins 6.990 kr. Endilega kíkið við hjá okkur í golfskálanum og gerið góð kaup.

ProvTILBOD2

UA Skór Tilboð

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 20/08/2026
    Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
  • 20/08/2026
    Stækkun golfskála Keilis
  • 18/08/2026
    Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
  • 18/08/2026
    Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
  • 17/08/2026
    Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
  • 06/08/2026
    Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00