Frábær golfhringur hjá Gísla.
Frábær golfhringur hjá Gísla.
Þrír kylfingar frá Keili eru að leika á opna breska áhugamannamótinu í Kent á Englandi.
Það eru þeir Henning Darri Þórðarson, Rúnar Arnórsson og Gísli Sveinbergsson.
Leiknar eru 36 holu höggeikur á tveimur völlum og komast síðan 64 þeir bestu áfram í holukeppni. 288 af bestu áhugakylfingum í heiminum eru skráðir til leiks.
Gísli gerði sér lítið fyrir og setti nýtt glæsilegt vallarmet á Prince vellinum og lék á 64 höggum eða átta höggum undir pari. Frábær árangur hjá Gísla sem lék best allra í mótinu í gær.
Henning Darri lék á Royal St. Georges og lék á 71 höggi og Rúnar lék Prince völlinn á 77.
Gaman verður að fylgjast með þeim félögum næstu daga.
Hægt er að fylgjast með hér
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
Stækkun golfskála Keilis
Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00

