05/12/2014

Aðalfundur Keilis 2014

Aðalfundur Keilis 2014

Þá er komið að árlegum aðalfundi Keilis. Enn hann fer fram þriðjudaginn 9. desember klukkan 19:30. Dagskráin er samkvæmt lögum félagsins, í ár liggur fyrir fundinum tillaga til lagabreytinga. Stjórn Keilis finnst það nauðsynlegt að aðlaga lög klúbbsins að þeim hætti sem unnið hefur verið eftir síðustu ár. Með því að smella á tillöguna geta félagsmenn skoðað um hvað hún snýst GK lagabreytingatillaga 19.11.2014 Annars er hér dagskrá fundarins:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis
4. Lagabreytingar – stjórnarkjör (tillögur liggja frammi á skrifstofu viku fyrir fund)
5. Stjórnarkosning
6. Kosning endurskoðanda
7. Kosning fulltrúa og varafulltrúa í samtök, sem Keilir er aðili að
8. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2015
9. Önnur mál

Stjórn Golfklúbbsins Keilis

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 20/08/2026
    Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
  • 20/08/2026
    Stækkun golfskála Keilis
  • 18/08/2026
    Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
  • 18/08/2026
    Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
  • 17/08/2026
    Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
  • 06/08/2026
    Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00