Algengustu dómaraspurningar á Hvaleyrarvelli
Algengustu dómaraspurningar á Hvaleyrarvelli
Hvort lausn af stígum sé leyfileg er ein algengasta spurning sem við dómararnir í Keili fáum í golfmótum á Hvaleyrarvelli og frá félagsmönnum sem eru að spila völlinn dags daglega.
Stutta svarið er, já leikmenn fá vítalausa lausn af göngustígum og vegum á Hvaleyrarvelli NEMA af veginum meðfram grjótgarðinum á 11. braut, sá vegur er hluti vallar samkvæmt staðarreglum og engin lausn fæst af honum.
(myndatexti, ekki fæst lausn af veginum eða umhverfi hans sem liggur meðfram grjótkantinum við 11. brautina)
Af öðrum stígum og vegum er hægt að fá lausn án vítis, EN þegar tekin er vítalaus lausn frá óeðlilegum vallaraðstæðum s.s. göngustígum þarf að ákvarða næsta stað fyrir fulla lausn og lausnarsvæðið er svo ein kylfulengd, frá þeim punkti, ekki nær holunni OG það er ekkert víst að sá staður sé betri til að slá golfhögg heldur en staðurinn þar sem boltinn liggur. Því er skynsamlegastað vera búinn að finna þann stað áður en boltanum er lyft.
Sem dæmi, við leik á 2. braut í Hrauninu kemur fyrir að boltar leikmanna liggi á stígnum milli annarrar flatar og þriðja teigs. Þar er næsti staður fyrir fulla lausn frá stígnum og þar með lausnarsvæðið oft uppi í brekkunni við teiginn. Þá er alls óvíst að það sé betra að slá boltann þaðan heldur en af stígnum.
Einnig verður að huga að fullri lausn, þ.e.a.s. leikmaður má ekki taka vítalausa lausn af stíg og standa svo á stígnum þegar hann slær höggið. T.d. væri lausn fyrir rétthentan kylfing sem ætti þennan bolta á stígnum á 4. braut vinstra megin við stíginn (græn merkt) en ekki hægra megin (rauð merkt) því hann má ekki standa á stígnum (verður að taka fulla lausn). Þá er staðurinn þar sem hann gæti látið boltann falla orðinn fjær staðnum þar sem boltinn liggur en er mögulegt vinstra megin.
Svo er rétt að minna á að ef staðurinn fyrir vítalausa lausn er ófýsilegur líkt og staðurinn þar sem boltinn liggur er alltaf hægt að dæma boltann ósláanlegan og taka lausn gegn einu vítahöggi og nota einhverra þeirra þriggja lausnaraðferða sem gilda um ósláanlegan bolta (sjá mynd).






