Forskot, afrekssjóður, mun styðja við bakið á alls sex atvinnukylfingum á árinu 2023. Forskot hefur frá árinu 2012 úthlutað styrkjum til afrekskylfinga og er úthlutunin í ár sú 12. í röðinni.
Að sjóðnum standa: Eimskip, Valitor, Íslandsbanki, Icelandair, Vörður tryggingar, Bláa Lónið og Golfsamband Íslands.

Frá stofnun sjóðsins hefur markmiðið að gera styrkþegum auðveldara fyrir að æfa og keppa við bestu skilyrði í samræmi við það sem gerist á alþjóðlegum vettvangi í golfíþróttinni. Axel Bóasson, Bjarki Pétursson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Haraldur Franklín Magnús og Ragnhildur Kristinsdóttir fá úthlutað úr sjóðnum í ár.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er fædd árið 1994 og hún gerðist atvinnukylfingur árið 2018. Guðrún Brá tryggði sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni árið 2020 eftir að hafa leikið á LET Access mótaröðinni frá árinu 2018. Guðrún Brá fær fjölmörg tækifæri á sterkum mótum á tímabilinu en hún er með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni, en mótaröðin er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í kvennaflokki í Evrópu.

Axel Bóasson er fæddur árið 1990 en hann gerðist atvinnukylfingur árið 2013. Axel er með keppnisrétt á Nordic Golf League mótaröðinni sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki. Axel á góðar minningar frá Nordic Golf League mótaröðinni en hann varð stigameistari á mótaröðinni árið 2017 – og fékk í kjölfarið keppnisrétt á Challenge Tour, Áskorendamótaröðinni tímabilið 2017-2018.

Markmiðið með stofnun Forskots afrekssjóðs árið 2012 var að búa til reynslu og þekkingarbrunn sem skili sér til kylfinga framtíðarinnar og ungir kylfingar geti litið til í sínum framtíðaráætlunum.
Ríkar kröfur eru gerðar til þessara íþróttamanna um ráðstöfun styrkjanna. Ber þeim að leggja fram æfinga- og keppnisáætlanir auk fjárhagsáætlunar fyrir verkefni sín auk þess sem gerðir eru sérstakir samningar við hvern kylfing um að þeir virði reglur Íþrótta- og Ólympíuhreyfingarinnar.

Þeir kylfingar sem fá úthlutað úr Forskoti afrekssjóði eru sterkar fyrirmyndir. Það að eiga afreksmenn í íþróttum er stór og mikilvægur þáttur í því að fá börn og unglinga til að sinna íþróttum. Því er litið á sjóðinn sem mikilvægt skref til að efla íþróttir barna og unglinga og hvetja þau til dáða. Einn fulltrúi frá þeim sem aðild eiga að Forskoti er í stjórn sjóðsins og auk þess hefur stjórn sér til ráðgjafar fagteymi sem gerir tillögur um úthlutanir úr sjóðnum.