22/05/2026

Bikarkeppni Keilis í samstarfi við Hjarta Hafnarfjarðar

Bikarkeppni Keilis í samstarfi við Hjarta Hafnarfjarðar

Við elskum Hjarta Hafnarfjarðar

Bikarkeppni Keilis 2026 í samstarfi við Hjarta Hafnarfjarðar

Um er að ræða holukeppnis útsláttarkeppni yfir sumarið þar sem þú getur unnið til glæsilegra vinninga.

Undankeppnin verður leikin dagana 25-31 maí í punktakeppni með forgjöf.

Hvernig tekur þú þátt?

  • Þú skráir þig á venjulegan rástíma á tímabilinu 25-31 maí.
  • Greiðir 2000 krónur í golfverslun áður en þú ferð að spila og tekur með þér skorkort. Innifalið í gjaldinu er súpa og brauð eftir leik.
  • Eftir golfið skilar þú svo skorkortinu til golfverslunarinnar og þú ert kominn í keppnina.
  • Allir geta tekið þátt í undankeppninni oftar en einu sinni ef þeir telja sig geta bætt skorið sitt milli daga.

Að undankeppni lokinni komast svo 16 punktahæstu keppendurnir áfram í útsláttarkeppnina.

Í útsláttarkeppninni er leikin holukeppni með forgjöf þangað til Bikarmeistari Keilis er krýndur.

Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir árangur í undankeppninni og í útsláttarkeppninni.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 05/07/2026
    Meistaramót Keilis hafið
  • 26/06/2026
    Golfreglu pöbbkviss fimmtudaginn 2. júlí
  • 23/06/2026
    Meistaramót Keilis 2026
  • 15/06/2026
    Úrslit úr Opna Kristals mótinu
  • 04/06/2026
    Opna Kristals mótið – Skráning hefst í dag
  • 01/06/2026
    Átján Keiliskrakkar kepptu á Nesinu