20/11/2014

Breytingar í stjórn Keilis

Breytingar í stjórn Keilis

Á aðalfundi Keilis 9. desember nk. liggur fyrir að kjósa þurfi tvo nýja stjórnarmenn. Þau J. Pálmi  Hinriksson og Ingveldur Ingvarsdóttir hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.  Pálmi var kjörin í stjórn á aðalfundi 2001 og hefur verið gjaldkeri Keilis frá árinu 2004. Pálmi hefur sinnt hlutverki sínu einstaklega vel og stýrði fjármálum Keilis í gegnum erfiða tíma með mikilli festu. Ber að þakka honum sérstaklega það óeigingjarna starf. Ingveldur hefur verið í stjórn frá árinu 2009 lengst af sem formaður kvennanefndar en kvennastarf GK hefur verið í miklum blóma. Nú síðasta ár sinnti Ingveldur hlutverki ritara.

Ingveldur og Pálmi þakka stjórn, starfsmönnum og félagsmönnum fyrir afar ánægjulegt samstarf.

Stjórn GK vill þakka Pálma og Ingveldi sérstaklega fyrir þeirra framlag. Stjórn hvetur jafnframt áhugasama félagsmenn til að bjóða sig fram í stjórn, hafi þeir áhuga á að sinna þeim fjölmörgu verkefnum sem framundan eru.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 20/08/2026
    Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
  • 20/08/2026
    Stækkun golfskála Keilis
  • 18/08/2026
    Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
  • 18/08/2026
    Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
  • 17/08/2026
    Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
  • 06/08/2026
    Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00