Elsti og yngsti í gegnum niðurskurðinn
Elsti og yngsti í gegnum niðurskurðinn
Íslandsmótið í höggleik er nú hálfnað og búið að skera þátttakendafjölda niður um helming fyrir helgina. Það vakti mikla athygli í gær þegar í ljós kom að bæði elsti og yngsti keppandi mótsins komust í gegnum niðurskurðinn, en þeir léku einnig saman í ráshóp í gær. Aldursforseti mótsins er Akureyringurinn Björgvin Þorsteinsson en hann er að leika á sínu 54. Íslandsmóti. Yngstur er Böðvar Bragi Pálsson úr GR, á sínu fyrsta Íslandsmóti, en hann er einungis 14 ára. Böðvar lék frábærlega á Hvaleyrarvelli í gær, lauk leik á einu höggi undir pari og er samanlagt á þremur höggum yfir pari og er sem stendur í 25. sæti. Frábær árangur hjá bráðefnilegum kylfing.
Björgvin lauk leik í gær á 77 höggum og er samtals á 10 höggum yfir pari í 60. sæti.
Þess má til gamans geta að þegar Böðvar fæddist, í maí árið 2003, var Björgvin búinn að taka þátt í 39 Íslandsmótum og á leiðinni á sitt fertugasta!
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis
Keilisferð til Fairplay

