19/11/2021

Framboð til stjórnar Keilis

Framboð til stjórnar Keilis

Nú fer að styttast í Aðalfund Keilis, stjórnin hefur ákveðið að hann fari fram þriðjudaginn 7. desember n.k.

Í lögum Keilis kveður á um að framboðum til stjórnar skuli skila inn 7 dögum fyrir aðalfund, kosið er um þrjá stjórnarmenn til tveggja ára og Formanns til eins árs.

Núverandi stjórnarmenn sem þurfa endurkosningu hafa allir ákveðið að bjóða fram krafta sína áfram, enn þau eru Daði Janusson, Bjarni Þór Gunnlaugsson og Már Sveinbjörnsson. Þá hefur Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir formaður einnig ákveðið að bjóða fram krafta sína áfram til eins árs.

Stjórnin hvetur félagsmenn sem hafa áhuga að sitjast í stjórn að hafa samband við skrifstofu Keilis til að bjóða fram krafta sína fyrir 1. desember n.k. Hægt er að senda inn framboð á netfangið keilir@keilir.is

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 31/05/2026
    Fréttir af starfshópi um nýjan golfvöll
  • 30/05/2026
    Keilir, HÁ verslun og Kress taka höndum saman
  • 22/05/2026
    Bikarkeppni Keilis í samstarfi við Hjarta Hafnarfjarðar
  • 13/05/2026
    Við minnum á Hreinsunardaginn
  • 13/05/2026
    Keilisferð til Fairplay – Nú er vikuferð í boði
  • 13/05/2026
    Geggjað kvennastarf