18/02/2026

Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði

Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði

Nú síðastliðinn 4 ár hefur verið unnið að gagngerði endurbót á aðstöðu vallarstarfsmanna og véla klúbbsins.

Hófst hún með byggingu á 480 fermetra vélarsalar í nýju húsnæði. Því nauðsynlegt er að koma dýrum og viðkvæmum vélakosti í skjól fyrir helstu veðrum og vindum.

Aðstaðan okkar löngu sprunginn og síðustu ár höfum við þurft að leiga aðstöðu undir vélar og tæki yfir helstu vetrarmánuðina útí bæ.

Fyrir tveimur árum hófst síðan endurgerð gamla apa og ljónabúrsins sem nú þjónar nú þeim tilgangi að vera starfsmannaaðstaða, kaffistofa og verkstæði. Það er óhætt að segja að með samhentu átaki vallarstarfsmanna og ótrúlegra félagsmanna sem virðast geta allt þá er að verða til starfsmannaaðstaða sem sæmir þeirri viðamiklu starfsemi sem fer fram hjá Keili.

Þakkir fara til þeirra fjölmörgu sem lögðu hönd á plóginn við þetta verkefni og hér fylgir skemmtilegt myndband sem búið að setja saman þar sem breytingar á þessu gamla og góða húsnæði öðlast nýtt líf.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis
  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili