Fréttir af afreksfólkinu okkar
Fréttir af afreksfólkinu okkar
Það sem nýjast er að frétta og það helsta sem er búið að vera í gangi hjá okkar afreksfólki var frábær æfingaferð með landsliðinu í golfi á hið flotta svæði La Finca golf á Spáni fyrr í janúarmánuði.
Fulltrúar Golfklúbbsins Keilis voru þau Elva María Jónsdóttir, Máni Freyr Vigfússon, Óliver Elí Björnsson og Halldór Jóhannsson en þau voru valin í landsliðshóp eftir frábæran árangur á síðastliðnu keppnistímabili.
Þetta var löng ferð, spilað var mikið golf, æft stíft eftir hvern hring undir handsleiðslu landsliðsþjálfara og mörgum af okkar bestu þjálfurum á landinu. Lærði okkar fólk mikið af þessari ferð og fengu frábært tækifæri að æfa og keppa við okkar bestu atvinnukylfinga sem voru í undirbúningi fyrir komandi keppnistímabil. Það er svo stutt í næsta verkefni hjá þessum kylfingum því þau munu taka þátt í tveimur unglingamótum í Portúgal um miðjan febrúar.
Markús Marelsson, landsliðskylfingur komst ekki í þessa æfingaferð vegna þess að hann var við keppni í Bandaríkjunum á unglingamóti sem heitir Junior Orange Bowl. Markús byrjaði mótið gríðarlega vel með því að spila á 69 höggum og var meðal efstu manna. En það dalaði aðeins flugið hjá okkar manni og spilaði hann síðustu þrjá hringi á 80, 73 og 76 höggum og endaði í 35.sæti í mótinu. Frábær árangur hjá Markúsi og flottur fulltrúi Golfklúbbsins Keilis.
Atvinnukylfingurinn og Íslandsmeistarinn okkar, Guðrún Brá Björgvinsdóttir er núna í stífum undirbúning fyrir 5 vikna ferðalag til Suður Afríku þar sem hún mun fara í æfingabúðir og keppa í þremur mótum sem eru hluti af Sunshine Tour. Þetta er flottur undirbúningur fyrir Guðrúnu Brá til að koma sér í gírinn fyrir LET mótarðina því fyrstu mótin sem hún mun taka þátt í verða í Suður Afríku í apríl mánuði. Hlökkum til að fylgjast með okkar allra bestu spreyta sig við þær bestu í Evrópu.
Klúbbmeistarinn okkar Svanberg Addi Stefánsson og fyrrum klúbbmeistari Daníel Ísak Steinarsson eru að fara að keppa á vetramótaröð Ecco Tour dagana 21. febrúar til 5. mars. Eru þetta þrjú mót sem verða leikin á þessum tíma og verður keppni haldin á Infintium Golf á Barcelona. Þarna keppa þeir við bestu atvinnukylfinga á Norðurlöndunum og verður gaman að fylgjast með þeim etja kappi við þá.
Við munum halda áfram að færa ykkur fréttir af okkar fólki í komandi verkefnum.
Kær kveðja,
Axel Bóasson
Afreks- og yfirþjálfari Keilis

