13/05/2026

Geggjað kvennastarf

Geggjað kvennastarf

Kvennastarfið í Keili er bæði öflugt og líflegt þar sem gleði, samvera og keppni fara saman á einstakan hátt. Ársstarfið hefst með hinni vinsælu púttmótaröð þar sem þátttakan hefur alltaf verið góð. Yfir 90 konur taka þátt og koma saman á glæsilegu lokahófi þar sem dagskrá sumarsins er kynnt, meðal annars með skemmtilegri kynningu frá Golfbúðinni í Hafnarfirði.

Yfir sumarið er miðvikudagsmótaröðin einn af hornsteinum starfsins. Við hvetjum allar Keiliskonur til að taka þátt í fjölbreyttum forgjafarflokkum og skapa þannig skemmtilega og hvetjandi stemningu allt sumarið. Mótaröðinni lýkur með veglegu uppskeruhófi í september.

Vinkonumótið í ár er haldið með Golfklúbbi Reykjavíkur, þar sem leikið er tvo daga, einn á hvorum velli. Stemningin er ávallt frábær og má minna á að Keiliskonur stóðu uppi sem sigurvegarar í fyrra gegn Oddskonum og tryggðu sér vinkonubikarinn.

Opna kvennamót Keilis verður haldið 15. ágúst og hefur fest sig í sessi sem eitt glæsilegasta kvennamót landsins, með mikilli þátttöku og veglegum vinningum.

Haustferðin er síðan glæsilegur endapunktur sumarsins, þar sem Keiliskonur njóta keppni og samveru í Borgarfirði.

Kvennastarfið í Keili er sannarlega kraftmikið samfélag þar sem allar eru velkomnar.

F.h. kvennastarfsins
Rósa Lyng Svavarsdóttir
Formaður kvennanefndar Keilis

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis
  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili