Geoff Mangum frá Putting Zone í heimsókn
Geoff Mangum frá Putting Zone í heimsókn
Dagana 10. til 13. febrúar verður einn sá besti í púttfræðum staddur á landinu á vegum PGA á Íslandi.
Hann heitir Geoff Mangum og er sérfræðingur í púttum. Hann á og rekur heimasíðuna puttingzone.com. Til hans hafa margir frægir kylfingar leitað og beðið hann um aðstoð.
Mangum verður með námskeið fyrir íslenska golfkennara helgina 11.-12. febrúar í Hraunkotinu.
Fyrir áhugasama er hægt að fara í kennslu hjá honum mánudaginn 13. febrúar á milli kl. 9:00 og 17:00.
Skráning og aðrar upplýsingar veitir Karl Ómar íþróttastjóri Keilis á netfangið kalli@keilir.is eða í síma 863-1008
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis

