Gísli lék á sex höggum undir pari og endaði í fjórða sæti á háskólamóti
Gísli lék á sex höggum undir pari og endaði í fjórða sæti á háskólamóti
Gísli Sveinbergsson endaði í fjórða sæti á háskólamóti sem fram fór á The Dunes vellinum um helgina. Gísli, sem leikur fyrir Kent háskólaliðið, lék hringina þrjá á -6 samtals en hann lék lokahringinn á pari vallar eða 72 höggum. Gísli var í öðru sæti fyrir lokahringinn eftir að hafa leikið á 70 og 68 höggum. Gísli, er á sínu fyrsta ári með Kent háskólaliðinu.
Bjarki Pétursson, úr Golfklúbbi Borgarness, er einnig í Kent háskólaliðinu. Bjarki lék hringina þrjá á +10, (74-75-80) og endaði hann í 64. sæti. Bjarki er einnig á fyrsta ári sínu með Kent háskólaliðinu sem er staðsett í Ohio fylki.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis

