Þar sem við erum kominn inn í veturinn og gras hætt að vaxa þá ætlum við að hafa ófrávíkjanlegar sérreglur þangað til vellirnir opna aftur í vor:

Golfbílar og þríhjól eru bönnuð frá og með föstudeginum 27. október.

Mottuskylda er á brautum og á par 3 holum. Þ.a.s kylfingar verða að nota sértilgerðar mottur undir boltann til að slá af á brautum og af teig eða færa boltann út í röff. Tveir mottustandar verða staðsettir annars vegar við 1. teig í Hrauninu og svo verður sameiginlegur standur við 13. teig sem verður hægt að nota fyrir Hvaleyrina og Sveinskotsvöll. Skila þarf mottunum aftur á sama stað eftir notkun

Þar sem völlurinn er mjög hogginn eftir sumarið þá teljum við það nauðsynlegt að setja á mottuskyldu þannig að flestir geti notið þess að leika áfram golf. Og þannig munu golfvellirnir ekki hafa tjón af vegna golfleiks yfir þennan viðkvæma tíma.

Það er von okkar að skilningur sé hjá félagsmönnum  á aðstæðum og þannig getum við notið þess að leika golf allan veturinn og haldið völlunum opnum lengur.