Golfleikjaskólinn er fyrir allar stelpur og stráka á aldrinum 5 – 8 ára og 9 – 12 ára.

Markmið skólans er að fyrstu kynni af golfi eru jákvæð og það er gaman að leika golf

  • farið er í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga
  • leiknar eru nokkrar golfholur á golfvelli
  • kennsla er gjarnan í formi þrauta og golfleikja
  • áhersla er á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir krökkunum

Dagsetningar í sumar:

    • 11.-14. júní  Fjórir dagar (þri. til föst.)                  12.000 kr.-
    • 18.-22. júní  Fjórir dagar (þri. til föst.)                 12.000 kr.-
    • 24.-28. júní Fimm dagar (mán. til föst.)             15.000 kr.-
    • 1.-5. júlí        Fimm dagar (mán. til föst.)             15.000 kr.-
    • 15.-18. júlí    Fjórir dagar (mán. til fim.)              12.000 kr.-
    • 29. júlí til 2. ágúst Fimm dagar (mán. til föst.)  15.000 kr.-
    • 12-14. ágúst Þrír dagar     (mán. til mið.)            9.500 kr.-

 

*Hægt er að velja um að vera á námskeiði frá kl. 9:00-11:30 eða kl. 13:00 -15:30.

*Í boði er að  fá lánaðan U.S.Kids Golf útbúnað meðan á námskeiði stendur.

*Allir eiga að mæta með hollt og gott nesti.

Veittur er 20% systkinaafsláttur og einnig ef viðkomandi sækir fleiri en eitt námskeið.

Umsjón með golfleikjaskólanum hefur Karl Ómar Karlsson íþróttastjóri Keilis og veitir hann allar nánari upplýsingar á netfangið Kalli@keilir.is

Námskeiðum lýkur með pylsuveislu og afhendingu viðurkenningarskjals frá Keili.

Skráning hefst 6. maí 2019 . Skráning fer fram rafrænt á skráningarformi á Keilir.felog.is

Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna inn á keilir.is undir liðnum íþróttastarf