10/06/2016

Golfnámskeið á döfinni

Golfnámskeið á döfinni

Hér er yfirlit yfir nokkur námskeið sem eru á döfinni hjá golfkennurum Keilis.

Nýliðanámskeið hefst 13. júní kl. 19:00. Námskeiðið er fimm klst. sem skiptast á eftirtalda daga:

13. júní kl. 19:00, 15. júní kl. 20:00, 20. júní kl. 21:00, 27. júní kl. 19:00 og 28. júní kl. 20:00.

Þetta námskeið hentar vel þeim sem vilja kynna og læra grunnatriðin í pútti, vippum og sveiflu. Verð er 15.000 kr.-

Skráning er hjá Kalla á netfangið karl.omar.karlsson@grundaskoli.is. Hægt er að fá lánaðar kylfur á námskeiðinu.

Námskeið í stutta spilinu og  teighöggum hefst 16. júní kl. 19:00.

Markmið með námskeiðinu er að auka kunnáttu sína og auka betur færnina í byrjun hverrar brautar og einnig við og á flötunum.

Námskeiðið er klst. í senn í fjögur skipti. Farið er í tækni fyrir lágu vippin, 10 til 50 metra fleyghögg inn á flatir, að slá upp úr glompu við flatir, stuttu, milli og löngu púttin og síðan en ekki síst teighöggin.

Námskeiðið verður dagana 16., 23., 27. og 28. júní kl. 19:00.

Námskeiðið kostar 9000 kr. og eru æfingakúlur innifaldir.

Skráning er á netfangið karl.omar.karlsson@grundaskoli.is

 

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 02/05/2025
    Keppnistímabilið fer að hefjast
  • 30/04/2025
    Hreinsunardagurinn 2025
  • 28/04/2025
    Sveinskotsvöllur opnar inn á sumarflatir í dag – Rástímabókanir hefjast
  • 23/04/2025
    Seinkun á opnun Hvaleyrarvallar
  • 22/04/2025
    Breytingar á rástímapöntunum
  • 22/04/2025
    Bættur leikhraði