26/06/2026

Golfreglu pöbbkviss fimmtudaginn 2. júlí

Golfreglu pöbbkviss fimmtudaginn 2. júlí

Það verður líf og fjör í golfskála Keilis þegar haldið verður golfreglu pöbbkviss í aðdraganda Meistaramótsins sem hefst 5. júlí.

Pöbbkvissið fer fram fimmtudaginn 2. júlí klukkan 19:00 í golfskálanum.

Viðburðurinn er hugsaður sem létt og gagnleg upphitun fyrir Meistaramótið þar sem þátttakendur geta rifjað upp golfreglur, prófað þekkingu sína og vonandi lært eitthvað nýtt.

Spurningarnar verða fjölbreyttar og snerta allt frá almennum reglum leiksins til algengra aðstæðna sem kylfingar lenda í á vellinum.

Þetta er því tilvalið tækifæri til að skerpa aðeins á reglunum áður en alvaran byrjar í Meistaramótinu.

Það verður svo ekki leiðinlegt að hlusta á spurningarnar, því strákarnir í Steve Dagskrá verða bæði spyrlar og stjórnendur kvöldsins – þannig að stemningin ætti að vera létt og skemmtileg.

Ekki þarf að skrá sig til að taka þátt, bara mæta á svæðið með þínu holli (2-4 saman í liði)

Hvort sem þú ert reglusnillingur eða bara að rifja upp, þá er þetta kvöld fyrir þig.

Sjáumst í golfskálanum!

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis
  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili