16/12/2020

Guðbjörg Erna endurkjörin formaður Keilis

Guðbjörg Erna endurkjörin formaður Keilis

Aðalfundur Keilis fór fram þann 15. desember síðastliðinn og var í þetta skiptið alfarið rafrænn með hjálp Microsoft Teams fjarfundarhugbúnaðarins. Alls voru 72 félagsmenn skráðir á fundinn og skiluðu 62 sér á fundinn þegar mest lét.

Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir var áfram kjörinn sem formaður Keilis fyrir starfsárið 2021. Aðrir í stjórn voru kjörin til tveggja ár þau Ellý Erlingsdóttir, Sveinn Sigurbergsson og Guðmundur Örn Guðmundssson. Fyrir í stjórn Keilis eru Bjarni Þór Gunnlaugsson, Már Sveinbjörnsson og Daði Janusson eiga þeir eitt ár eftir af sinni stjórnarsetu.

Rekstur Golfklúbbsins Keilis gekk vel á árinu 2020. Sökum COVID-19 var fólk lítið á faraldsfæti utan landsteinanna og niðurstaðan er stærsta íslenska golfsumar frá upphafi. Mikil aukning var á golfvöllunum okkar og í Hraunkoti eins og sést bersýnilega í ársreikningnum.

Tekjur á árinu 2020 voru 264,7 mkr. samanborið við 253,9 m.kr. árinu áður. Gjöld voru 235,9 m.kr. samanborið við 227,4 m.kr. á árinu 2019. Hagnaður ársins var 12,0 m.kr samanborið við 9,3 m.kr. á árinu 2019.

Hér má nálgast ársskýrslu Keilis fyrir starfsárið 2020.

 

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 10/05/2025
    Sumarið er komið
  • 09/05/2025
    Breytingar á vallarmörkum við 1. braut
  • 09/05/2025
    Nú byrjar ballið á Hvaleyrarvelli
  • 02/05/2025
    Keppnistímabilið fer að hefjast
  • 30/04/2025
    Hreinsunardagurinn 2025
  • 28/04/2025
    Sveinskotsvöllur opnar inn á sumarflatir í dag – Rástímabókanir hefjast