Íslandsmeistarinn okkar úr Keili, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, sigraði í Hvaleyrarbikarnum í golfi með sannfærandi hætti á Hvaleyrarvelli í dag. Guðrún Brá lék holurnar 36 á samtals þremur höggum undir pari. Hún lék fyrri hringinn á 69 höggum í morgun og hinn síðari nú seinni partinn á 70 höggum.

Hulda Clara Gestsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar kom næst en hún var fimm höggum á eftir Guðrúnu. Lék hún hringina á 77 og 67 og bætti sig því um tíu högg á milli hringja. Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR var þriðja á fjórum yfir pari og þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Ásdís Valtýsdóttir, báðar úr GR, lék á samtals sjö yfir pari.

Er þetta í annað sinn sem Guðrún Brá sigrar í Hvaleyrarbikarnum en mótið er stigamót á mótaröð GSÍ og hefur verið haldið síðan 2016.

„Ég spilaði bara nokkuð öruggt golf og var eiginlega ekki í neinum vandræðum. Í raun var þetta mjög einfalt golf. Þetta var fínt. Ég átti reyndar þrjú löng pútt sem ég setti ofan í ef ég horfi á báða hringina. Skorið hefði getað verið miklu betra miðað við öll þau færi sem ég fékk til að fá fugla en maður getur kannski sagt það eftir flesta hringi,” sagði Guðrún sem sigraði  einnigí Meistaramóti Keilis á Hvaleyrinni á dögunum.

„Ég var náttúrlega búinn að spila fjóra hringi í Meistaramótinu sem eru eins og frábærir æfingahringir fyrir þetta mót. Ég var því í góðum gír og þekkti völlinn vel,” sagði Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili.

Fyrsti sigur Hákons

Hákon Örn Magnússon, úr Golfklúbbi Reykjavíkur, sigraði í Hvaleyrarbikarnum í golfi á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í dag eftir nokkrar sviptingar. Hákon lék holurnar 36 á samtals fjórum höggum undir pari. Er þetta í fyrsta skipti sem heimamenn í Keili missa bikarinn í karlaflokki út úr bænum en mótið hóf göngu sína sem stigamót á mótaröð GSÍ árið 2016.

Hákon lék fyrri hringinn í morgun afar vel og var þá á 67 höggum og lék síðari hringinn á pari. Hákon sýndi seiglu á lokaholunum en á 17. braut vippaði hann í fyrir fugli eftir að hafa slegið illa af teig og þurfti að hafa fyrir parinu á 18. brautinni en setti gott pútt í fyrir sigrinum.

„Þetta var rosalega tæpt en geggjað að hafa náð að klára dæmið. Þetta er minn fyrsti sigur,“ sagði Hákon og vísar þar til þess að sigurinn var hans fyrsti á stigamóti.

„Boltinn hafði nokkrum sinnum verið alveg á brúninni hjá mér í dag og það hlaut að koma að því að pútt myndi detta í holu. Kannski átti þetta bara loksins að hafast hjá mér.“

Hákon tók daginn vægast sagt snemma í morgun, eða í nótt öllu heldur, eins og aðrir kylfingar í mótinu enda var ræst út á öllum teigum klukkan 6:30 í morgun. Hákon var skiljanlega afar ánægður með fyrri hringinn í morgun en þá lék hann á 67 höggum.

„Það var bara geggjaður hringur en ég byrjaði reyndar illa því ég fékk skolla á fyrstu tveimur holunum. En komst þá á skrið þar sem ég fékk sex fugla á næstu átta holum.“

Gamla kempan Guðmundur Rúnar Hallgrímsson úr Golfklúbbi Suðurnesja var höggi á eftir Hákoni. Guðmundur Rúnar fór illa að ráði sínu en hann var með forystu á fimm undir pari eftir að hafa leikið afar vel. En hann fékk skolla á 16. og 18. holu og það náði Hákon að nýta sér.

Heimamaðurinn Axel Bóasson var á tveimur undir pari eins og Andri Már Óskarsson úr Golfklúbbi Selfoss. Daníel Ísak Steinarsson úr Keili lék samtals á höggi undir pari og voru því fimm kylfingar í karlaflokki undir pari þegar uppi var staðið.