Um helgina lauk Íslandsmótum golfklúbba hjá liðum U14, U16 og U 21 ára. Mjög góður árangur náðist á mótunum. Keppt var á Flúðum, Hellu og á Selfossi.

Í flokki U14 ára sendi Keilir tvö strákalið og tvö stelpulið og var Keilir eini golfklúbburinn með fjögur lið í þessum aldursflokki.

Stelpuliðin enduðu í 5. og 6. sæti og strákaliðin enduðu í 2. sæti eftir mikla baráttu um Íslandsmeistaratitlinn og 11. sæti.

Liðin voru þannig skipuð á Flúðum:

Fjóla Huld Daðadóttir, Sara Birna Guðjónsdóttir, Elva María Jónsdóttir, Guðrún Lilja Thorarensen, Tinna Alexía Harðardóttir. Liðstjóri: Karen Sævarsdóttir   

María Högnadóttir, Ester Ýr Ásgeirsdóttir, Hrefna Líf Steinsdóttir, Brynja Maren Birgisdóttir, Kristín María Valsdóttir. Liðstjóri: Helga Lind Þóreyjardóttir

Oliver Elí Björnsson, Máni Freyr Vigfússon, Halldór Jóhannsson, Bjarki Hrafn Guðmundsson og Hrafn Valgeirsson, Liðstjóri:  Magnús Birgisson

Lúðvík Kemp, Hákon Kemp, Arnar Freyr Jóhannsson, Erik Valur Kjartansson, Flosi Freyr Ingvarsson, Jón Ómar Sveinsson

Liðstjóri: Svanberg Addi Stefánsson

 

Keilir sendi eitt lið U16 á Hellu og endaði strákaliðið í þriðja sæti.

Hjalti Jóhannsson, Birgir Páll Jónsson, Birkir Örn Einarsson, Víkingur Óli Eyjólfsson, Viktor Tumi Valdimarsson, Ragnar Kári Kristjánsson Liðstjóri: Gunnar Geir Gústafsson

 

Keilir sendi þrjú lið U21 ára á Selfoss. Besti árangur var þriðja sætið hjá Keili 1 liði stráka.

Keilir/Setberg Maríanna Ulriksen, Guðrún Birna Snæþórsdóttir, Lovísa Ösp Gunnarsdóttir, Sigurást Arnarsdóttir. Liðstjóri Arnar Björnsson  

Keilir 1 Bjarki Snær Halldórsson, Svanberg Addi Stefánsson, Tómas Hugi Ásgeirsson, Brynjar Logi Bjarnþórsson, Birkir Thor Kristinsson og Stefán Atli Hjörleifsson.

Keilir 2 Sören Cole Heiðarson, Andri Snær Gunnarsson, Borgþór Ómar Jóhannsson, Oddgeir Jóhannsso og Hákon Hrafn Ásgeirsson.

Næstu verkefni hjá Keiliskylfingum á öllum aldri er að taka þátt í meistaramóti Keilis dagana 2.-9. júlí.