14/03/2016

Héraðsdómaranámskeið GSÍ

Héraðsdómaranámskeið GSÍ

Árlegt héraðsdómaranámskeið GSÍ verður haldið í næsta mánuði.

Mikilvægt er að allir golfklúbbar hafi yfir dómurum að ráða og því nauðsynlegt að efla vitund félagsmanna fyrir gildi þess að klúbburinn hafi menntaða golfdómara. Um leið má minna á að nýjar golfreglur tóku gildi um síðustu áramót og því er þetta gott tækifæri til að fræðast um þær breytingar sem orðið hafa á reglunum.

Héraðsdómaranámskeiðið fer fram með sama hætti og síðustu ár, haldnir eru 4 fyrirlestrar þar sem farið er í ákveðnar reglur og síðan er prófdagur þar sem farið er almennt yfir störf dómara auk prófsins. Hægt er að velja úr tveimur mismunandi prófdögum.

1. fyrirlestur: Þriðjudaginn 5. apríl kl. 19:00 – 22:00. Reglur 1, 2, 3, 6, 9, 10, 13 og 15.
2. fyrirlestur: Fimmtudaginn 7. apríl kl. 19:00 – 22:00. Reglur 4, 5, 11, 16, 18, 19 og 20.
3. fyrirlestur: Mánudaginn 11. apríl kl. 19:00 – 22:00. Reglur 7, 8, 21, 22, 24 og 25.
4. fyrirlestur: Miðvikudaginn 13. apríl kl. 19:00 – 22:00. Reglur 12, 14, 17, 23, 26, 27 og 28.

Lokafyrirlestur og fyrra próf: Þriðjudaginn 19. apríl kl. 19:00 – 22:00.
Lokafyrirlestur og síðara próf: Laugardaginn 23. apríl kl. 10:00 – 13:00.

Athugið að að hægt er að velja að taka próf 19. apríl eða 23. apríl.

Allir fyrirlestrar og prófin verða haldin í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal.

Skráning er í netfangið domaranefnd@golf.is . Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu GSÍ í síma 514-4050. Skráningarfrestur fyrir héraðsdómaranámskeiðið er til hádegis þriðjudaginn 5. apríl.

Dómaranefnd GSÍ

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 23/03/2026
    Kynning á foreldraráði Keilis
  • 12/03/2026
    Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
  • 11/03/2026
    Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
  • 10/03/2026
    Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
  • 24/02/2026
    Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
  • 18/02/2026
    Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði