Túlkun viðbragðshóps GSÍ  á reglugerðinni sem tók gildi 25. mars heimilar golfklúbbum opnun með ákveðnum takmörkunum og verða vellir og Hraunkot æfingasvæði Keilis opin frá og með laugardeginum 27. mars samkvæmt neðangreindu. Allir snertifletir í Hraunkoti hafa verið meðhöndlaðir með Nanoseptic sótthreinsivörninni.  S.s hurðahúnar, boltavélar, snertiskjáir í golfhermum ofl.

Golfiðkun er áfram heimil utandyra og geta félagsmenn því leikið Sveinskotsvöll eins og verið hefur:

  • Vellir eru eingöngu opnir félagsmönnum
  • Skylda er að skrá sig í rástíma á Golfbox með tilliti til rakningar
  • Félagsmenn skulu virða 2ja metra reglu
  • Enginn sameiginlegur búnaður eða snertifletir
  • Gæta skal að almennum sóttvörnum

Inniæfingaaðstaða Hraunkots verður opin frá og með laugardegi 27. mars:

  • Hámarksfjöldi er 10 manns
  • Grímuskylda er í húsinu
  • Félagsmenn þurfa að skrá sig á blað í afgreiðslu þegar mætt er með upplýsingum um nafn og kennitölu, við brottför skal einnig skrá tíma sem varið er á æfingasvæði
  • Enginn sameiginlegur búnaður verður í notkun, s.s. stangir og æfingaboltar
  • Hámarksfjöldi í Hermum verða tveir kylfingar
  • Aðeins einn notar tölvuna í hermi
  • Gestir skulu virða 2ja metra reglu
  • Gæta skal að almennum sóttvörnum

Æfingasvæði Hraunkots verður opið frá og með laugardegi 27. mars:

  • Skýlinu verður skipt í tvö hólf með sérinngangi í hvert hólf
  • Hámarksfjöldi í hvorru hólfi er 10 manns
  • Kylfingar þurfa að skrá sig á blað við boltavél þegar mætt er með upplýsingum um nafn og kennitölu, við brottför skal einnig skrá tíma sem varið er á æfingasvæði
  • Kylfingar skulu virða 2ja metra regluna
  • Gætt verður að sameiginlegum snertiflötum með þar til gerðum búnaði (NanoSeptic)
  • Gæta skal að almennum sóttvörnum

Páskar eru framundan og að þeim loknum styttist óðum í vorið.  Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að vinna saman og fara eftir þeim reglum sem settar eru ef starfsemi komandi golftímabils á að fara af stað á réttum tíma. Við biðjum ykkur öll að fara varlega, gæta vel að persónulegu hreinlæti og almennum sóttvörnum.

Golfkveðja Keilir