Hvaleyrarbikarinn 2025: Úrslit
Hvaleyrarbikarinn 2025: Úrslit
Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr Golfklúbbi Selfoss og GR-ingurinn Jóhannes Guðmundsson sigruðu í Hvaleyrarbikarnum í golfi sem lauk á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í dag. Mótið er eitt stigamótanna á mótaröð GSÍ.
Heiðrún Anna sigraði í fyrsta skipti á mótinu og lauk leik á þremur höggum yfir pari samtals. Lék hún hringina þrjá á 72, 74 og 70 höggum. Þegar uppi var staðið var sigurinn afgerandi en Elsa Maren Steinarsdóttir úr GR var fimm höggum á eftir. Fyrir lokahringinn munaði tveimur höggum á þeim í efstu tveimur sætunum en Heiðrún og Elsa höfðu þá slitið sig frá hópnum. Bronsverðlaunin hlaut Eva Kristinsdóttir en hún var fimmtán höggum á eftir Heiðrúnu.
Jóhannes sigraði einnig í fyrsta skipti á mótinu en Hvaleyrarbikarinn er einn elsti verðlaunagripurinn sem keppt er um í golfíþróttinni á Íslandi. Spennan var mikil því Jóhannes og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR voru jafnir eftir 54 holur og þurfti því bráðabana til að skera úr um úrslit. Þar hafði Jóhannes betur.
Hann lék á 72, 68 og 73 höggum en Guðmundur Ágúst elti hann uppi á lokahringnum í dag með því að leika á 69 höggum. Hina hringina lék Guðmundur á 71 og 73 höggum. Sigurður Bjarki Blumenstein einnig úr GR var lengst af í baráttunni fór illa út úr hinni erfiðu 16. holu og lauk leik í dag á 76 höggum. Veigar Heiðarsson úr Golfklúbbi Akureyrar náði bronsinu en hann lék á 73, 70 og 71 höggi.
Þarf að vera á tánum á seinni 9
Selfyssingurinn Heiðrún Anna Hlynsdóttir segir pútterinn hafa verið bestu kylfuna í golfpokanum síðustu dagana þegar hún lék virkilega vel á Hvaleyrarvelli og sigraði í Hvaleyrarbikarnum hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.
„Ég spilaði vel og var stöðug. Ég púttaði vel og bjargaði til að mynda góðum pörum með því auk þess að setja pútt niður fyrir fuglum. Þetta gekk því vel á heildina litið en ég myndi segja að púttin hafi skipt mestu máli þótt slátturinn hafi einnig verið góður,“ segir Heiðrún og frammistaðan lofar góðu því mikið er jú eftir af keppnistímabilinu.
„Sveiflan lítur vel út og púttin eru mun betri en í fyrra.“
Íslandsmótið verður haldið hjá Keili í ágúst og eftir sigur í Hvaleyrarbikarnum er skiljanlega fiðringur hjá Heiðrúnu Önnu fyrir Íslandsmótinu.
„Já það er mjög spennandi og skemmtilegt að hafa Íslandsmótið hérna á Hvaleyrinni. Það var fínt að fá þessa upphitun fyrir Íslandsmótið og það verður geggjað mót. Er ekki markmiðið hjá öllum sem eru í þessu að vinna Íslandsmeistaratitilinn? Í síðustu viku spilaði ég hér í fyrsta skipti eftir breytingarnar á síðari níu holunum. Það er mikil áskorun að takast á við völlinn og maður þarf að vera á tánum á seinni 9. Þetta eru erfiðar holur og sérstaklega þegar vindurinn blæs,“ segir Heiðrún Anna Hlynsdóttir.
Þrautseigjan til staðar
Jóhannes Guðmundsson úr GR fagnaði sigri í karlaflokki eftir bráðabana við reynsluboltann Guðmund Ágúst Kristjánsson.
„Þegar komið er í bráðabana þá reyni ég að forðast mistök. Þetta er maður á móti manni og ég nálgast það þannig að gera ekki mistök. Ekki síst eins og holustaðsetningin var á 15. flötinni í dag. Að reyna að komast nálægt í öðru höggi er svolítil áhætta,“ segir Jóhannes sem var þolinmóður í mótinu.
„Þrautseigjan skipti mestu máli. Völlurinn er erfiður og þá sérstaklega seinni 9 holurnar. Þar eru nokkrar holur sem eru mjög strembnar. Besta veðrið var fyrsta keppnisdaginn en vindurinn varð erfiðari eftir það. Þá gat maður þurft að sætta sig við að vera ekki verðlaunaður fyrir góð högg. Maður verður bara að takast á við það.“
Jóhannes segir Hvaleyrarvöll henta sér ágætlega og verður áhugavert að sjá til hans á Íslandsmótinu í ágúst.
„Völlurinn er frábær og hentar mér vel. Ég er tiltölulega högglangur og seinni 9 holurnar eru þannig að maður græðir á högglengd. En Íslandsmótið er fjögurra daga mót og þá reynir enn meira á þrautseigjuna. Það byrja allir jafnir og maður þarf að malla í gegnum slíkt mót. Maður getur spilað mótið frá sér á fyrsta degi en getur ekki unnið mótið á fyrsta degi. Vonandi verð ég í toppbaráttunni þegar nokkrar holur eru eftir,“ segir Jóhannes Guðmundsson.