Keppni um Hvaleyrarbikarinn í golfi hófst hjá Golfklúbbnum Keili á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í morgunsárið.

Mótið er hið næstsíðasta á stigamótaröð GSÍ á þessu ári og eykst því spennan í keppninni um stigameistaratitlana.

Kylfingarnir leika 54 holur í dag, á morgun og sunnudag eða 18 holur á dag. Hvaleyrarbikarinn er orðinn fastur liður í tilverunni hjá íslenskum kylfingum eftir að mótið var endurvakið 2017 en undanfarin ár hefur mótið verið haldið í júlí eða áður en Íslandsmótið fer fram.

Mótið er sterkt þótt nokkrir íslenskir afrekskylfingar séu erlendis við störf ef þannig má að orði komast. Nýbakaður Íslandsmeistari Logi Sigurðsson úr Golfklúbbi Suðurnesja er til að mynda á meðal keppenda.

Íslandsmeistari kvenna Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR er erlendis en hún kann vel við sig á Hvaleyrinni og hefur unnið bikarinn þrívegis á síðustu fjórum árum. Hún sigraði í fyrra og Guðmundur Ágúst Kristjánsson sigraði í karlaflokki.

Mótshaldarar hjá Golfklúbbnum Keili leggja mikla áherslu á að umgjörð Hvaleyrarbikarsins sé eins og best verður á kostið og aðbúnaður keppenda sé góður.

Öllum keppendum er boðið í morgunmat fyrir alla keppnisdagana sem dæmi og að mótinu loknu verður einnig boðið upp á veitingar. Kylfingar auk þess geta slegið á grasi á æfingasvæðinu við Hraunkot fyrir og eftir hringina í stað þess að slá á gervigrasi.

Eldri bikarinn farið oftar en einu sinni til Asíu

Keppt er um Hvaleyrarbikarinn og á verðlaunagripurinn sér nokkra sögu. Er hann einn af elstu bikurunum í safninu hjá golfklúbbnum Keili.  Var bikarinn gefinn af Toyota umboðinu árið 1979 eða tólf árum eftir að klúbburinn var stofnaður. Var keppt um bikarinn á opnu móti hjá Keili sem var haldið var í nokkur ár.

Bikarinn er veglegur og fremur óvenjulegur í útliti. Var hann hannaður og sérsmíðaður í listagallerí í Japan á sínum tíma. Þegar stigamótinu Hvaleyrarbikarnum var komið á fót árið 2016 þurfti að búa til annað eintak enda keppt í tveimur flokkum í Hvaleyrarbikarnum. Var bikarinn sendur til Kína með það fyrir augum að búa til eftirlíkingu en Kínverjarnir sem ætluðu að taka verkið að sér treystu sér ekki til þess þegar á hólminn var komið.

Höfðu Keilismenn þá upp á listagalleríinu í Japan og var þar smíðaður annar bikar sem gefinn var af Icewear. Þá þurfti raunar einnig að gera lítillega við bikarinn sem hafði skemmst á heimleiðinni frá Japan. Bikarinn hefur því farið nokkrar ferðir á milli Íslands og Asíu.