06/06/2012

Hvaleyravöllur lokaður til 14:30 8. júní

Hvaleyravöllur lokaður til 14:30 8. júní

Vegna boðsmóts Skeljungs verður Hvaleyrarvöllur lokaður þann 8. júní til klukkan 14:30. Frítt verður fyrir Keilisfélaga á Setbergsvöll til klukkan 12:00. Annars minnum við á vinavellina okkar enn þeir eru 7 talsins og bættist Sandgerðsivöllur á þann lista nú á vormánuðum. Annars eru hér helstu upplýsingar um vinavelli Keilis 2012:
Árið 2012 hefur verið samið við sjö golfklúbba um vinavelli, þeir eru:

Golfklúbbur Hellu
Golfklúbbur Vatnsleysustrandar
Golfklúbbur Suðurnesja (Leiran)
Golfklúbburinn Borgarnesi
Golfklúbburinn Geysi Haukadal
Golfklúbburinn Selfossi
Golfklúbbur Sandgerðis (vallargjald 1500)

Félagsmenn Golfklúbbsins Keilis greiða krónur 1000 í vallargjald í hvert sinn er þeir leika golfvellina nema á Sandgerðisvellinum þarf að greiða 1500 krónur og skiptir ekki máli hvort leiknar séu 9 eða 18.holur. Vallargjaldið greiðist í afgreiðslu viðkomandi golfklúbbs.
Samkomulagið gildir ekki ef félagsmenn leika með hópum, sem gert hafa sérstaka samninga um afslætti af vallargjöldu, eins og t.d fyrirtækjamót. Þetta samkomulag gildir aðeins gegn framvísun félagsskírteinis fyrir árið 2012.
Athugið að panta rástíma.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 10/05/2025
    Sumarið er komið
  • 09/05/2025
    Breytingar á vallarmörkum við 1. braut
  • 09/05/2025
    Nú byrjar ballið á Hvaleyrarvelli
  • 02/05/2025
    Keppnistímabilið fer að hefjast
  • 30/04/2025
    Hreinsunardagurinn 2025
  • 28/04/2025
    Sveinskotsvöllur opnar inn á sumarflatir í dag – Rástímabókanir hefjast