Ágæti félagi,  Gleðilegt nýtt golfár.

Á  aðalfundi Golfklúbbsins Keilis sem haldinn var miðvikudaginn 11. desember sl. var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2019.

Á fundinum var Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir endurkjörinn formaður klúbbsins. Með henni í stjórn eru Sveinn Sigurbergsson, Guðmundur Örn Óskarsson, Ellý Erlingsdóttir, Bjarni Þór Gunnlaugsson, Daði Janusson og Már Sveinbjörnsson.

Innheimta félagsgjalda fyrir árið 2019 verður eftirfarandi.  Sendir verða út þrír greiðsluseðlar til þeirra sem kjósa þann greiðslumáta. Athugið að greiðsluseðlana verður aðeins hægt að greiða í heimabanka.

Þeir félagar sem greiða með greiðslukorti, VISA eða EURO geta dreift greiðslum í allt að 10 jafna hluta frá og með 13.desember og er 3% þóknun af þeim viðskiptum. Þeir sem skiptu um greiðslukort frá síðasta greiðslutímabili eru vinsamlega beðnir um að  koma upplýsingum um breytingar á skrifstofu Keilis.

Þeir sem ekki  greiða með korti munu fá senda þrjá greiðsluseðla í heimabanka með eindaga 1. febrúar,1. mars og 1. apríl, gjald fyrir greiðsluseðil er kr. 350,00.

Athugið að til þess að losna við greiðsluseðlagjaldið þarf að gera það í heimabanka viðkomandi með því að fara í flipann aftan við kröfuna og velja um að setja kröfuna í beingreiðslu.

Henti greiðslufyrirkomulag okkar ekki, bendum viðkomandi á að semja við þjónustufulltrúa sinn um aðra greiðsludreifingu. Í þeim tilfellum greiðir viðskiptabankinn félagsgjaldið til okkar í eingreiðslu inn á reikning Keilis í banka 140-26-5581 kennitala 680169-6919. Hafi félagsmaður verið í greiðsluþjónustu banka til þessa, verður sá hina sami að hafa samband við þjónustufulltrúa sinn og láta vita að Landsbankinn annist nú innheimtu félagsgjalda Keilis.

Hafi félagsmaður ekki greitt gjaldið eða samið um greiðslur fyrir 10. apríl verður krafa send til frekari innheimtu og viðkomandi félagsmaður tekin út af félagaskrá án viðvörunar 1. maí. Eftir 10. apríl verður innborgað félagsgjald ekki endurgreitt.

Það eru vinsamleg tilmæli til þeirra sem vilja breyta um greiðslufyrirkomulag að gera það strax. Það eina sem þarf að gera til að ganga frá breytingu er að senda tölvupóst á netfangið david@keilir.is

 

Félagsgjöldin fyrir árið 2019.

Hópur   0 til 18 ára                   kr. 28.225        Sveinskots. 0-16 ára                    kr. 0
Hópur   19 til 26 ára                kr. 56.450         Sveinskots. 17-26 ára                  kr. 26.900
Hópur   27 til 70 ára                kr. 112.900       Sveinskots. 27-70 ára                 kr. 53.800
Hópur   71 til 74 ára                kr. 84.675          Sveinskots. 71 til 74 ára              kr. 40.350
Hópur   75 ára+                        kr. 56.450         Sveinskots. 75 ára+                      kr. 26.900

Skápaleiga fyrir árið 2019 verður kr. 14.500. Leiga fyrir stæði undir hjól og kerrur verður kr. 20.000 fyrir sama tímabil. Innheimta þessara gjalda fer fram samtímis félagsgjöldum.

Allar upplýsingar um aðalfund Keilis eru á heimasíðunni https://2018.keilir.is

Hvaleyri, janúar 2019

Virðingarfyllst, 
Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Keilis.