17/08/2026

Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp

Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp

Dagana 20.–22. ágúst fer fram Íslandsmót unglinga í höggleik á Hvaleyrarvelli og nú leitum við eftir öflugum hópi sjálfboðaliða til að hjálpa okkur að gera mótið sem best úr garði.

Til að tryggja góða upplifun fyrir keppendur skiptir framvarsla á vellinum miklu máli. Framverðir gegna lykilhlutverki við að halda leikflæði góðu í samvinnu með dómurum mótsins.

Við tökum með þökkum á móti allri aðstoð, hvort sem þú getur tekið eina vakt eða lagt okkur lið yfir stærri hluta mótsins. Engin aðstoð er of lítil og framlag hvers og eins skiptir miklu máli fyrir framkvæmd mótsins.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessu skemmtilega og mikilvæga verkefni biðjum við þig um að skrá þig eða hafa samband við okkur sem fyrst.

Við hlökkum til að vinna með ykkur og þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðning.

Skráðu þig með að smella hér

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili
  • 11/09/2026
    Haustfyrirkomulag rástímabókana
  • 10/09/2026
    Haustferð Keiliskvenna