28/06/2012

Frítt í dag á Setbergsvelli eftir 13:00

Frítt í dag á Setbergsvelli eftir 13:00

Þar sem Keilisvöllurinn er lokaður vegna boðsmóts Mannvits eftir klukkan 13:00 verður frítt á Setbergsvöllinn í dag eftir klukkan 13:00, einnig er frítt fyrir Keilisfélaga til klukkan 14:00 á morgun vegna starfsmannamóts Landsbankans. Einnig minnum við á vinavelli Keilis en þeir eru:

Árið 2012 hefur verið samið við sjö golfklúbba um vinavelli, þeir eru:

Golfklúbbur Hellu
Golfklúbbur Vatnsleysustrandar
Golfklúbbur Suðurnesja (Leiran)
Golfklúbburinn Borgarnesi
Golfklúbburinn Geysi Haukadal
Golfklúbburinn Selfossi
Golfklúbbur Sandgerðis

Félagsmenn Golfklúbbsins Keilis greiða krónur 1000 í vallargjald í hvert sinn er þeir leika golfvellina og skiptir ekki máli hvort leiknar séu 9 eða 18.holur. Vallargjaldið greiðist í afgreiðslu viðkomandi golfklúbbs. Nema hjá Sandgerði greiða félagsmenn Keilis 1500 krónur

Samkomulagið gildir ekki ef félagsmenn leika með hópum, sem gert hafa sérstaka samninga um afsætti af vallargjöldu, eins og t.d fyrirtækjamót. Þetta samkomulag gildir aðeins gegn framvísun félagsskírteinis fyrir árið 2012..

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 19/01/2026
    Birgir Björn fer yfir íþróttastarfið og Hraunkot
  • 02/01/2026
    Keilir hlýtur ÍSÍ bikarinn 2025
  • 29/12/2025
    Framkvæmdir á milli 15 og 18. brauta
  • 24/12/2025
    Jólakveðja frá Keili
  • 18/12/2025
    Frá aðalfundi – Viðurkenningar fyrir framfarir og árangur
  • 11/12/2025
    Innheimta félagsgjalda 2026 – Breytt fyrirkomulag greiðsluseðla