Miðvikudaginn 22. febrúar er boðað til fundar í Hraunkotinu kl. 20:30 vegna Íslandsmót golfklúbba hjá stelpum 50 ára og eldri sem fram fer í Vestmannaeyjum 18.-20. ágúst.

Allar stelpur 50 ára og eldri sem telja sig vera gjaldgengar í liðið í sumar eru boðaðar.

Meðal efnis:

– kynning á því hvernig valið er í liðið

– golfþjálfun í vetur og sumar

– helstu verkefni í sumar

– Íslandsmót golfklúbba í Vestmannaeyjum í ágúst

– Önnur mál.