05/07/2020

Keppendur voru mættir snemma í Hraunkot

Keppendur voru mættir snemma í Hraunkot

Keppendur voru mættir snemma til að æfa sveifluna í Hraunkoti fyrir 1. dag meistaramótsins. Í Hraunkoti verða grasdagar alla vikuna og gefst öllum gestum Hraunkots því að slá af grasi á meðan á mótinu stendur. Þeir voru mættir snemma keppendur í 4. flokki karla til að teygja búkinn og hristann fyrir átök dagsins. Enda frábært veður á Hvaleyrinni í morgunsárið, þá er bara að vona að hafgolan nái sér ekki á strik í dag og næstu daga. Alls eru um 400 keppendur í Meistaramótinu þetta árið og því segjum við „Gangi ykkur vel og góða skemmtun“.

Allar merktar FJ vörur verða á 25% afslætti í golfversluninni á meðan á mótahaldi stendur.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 12/03/2026
    Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
  • 11/03/2026
    Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
  • 10/03/2026
    Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
  • 24/02/2026
    Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
  • 18/02/2026
    Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
  • 18/02/2026
    Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis