Nú styttist heldur betur í veisluna! Sjálft Meistaramótið.

Skráning hefst á morgun, miðvikudaginn 21. júní klukkan 14:00. Smellið hér til að skoða mótið

Fyrirkomulagið er með sama móti og fyrra, í völdum flokkum er niðurskurður eftir 3 hringi og komast 12 efstu og jafnir í hverjum flokki áfram og leika á “úrslitadeginum” laugardaginn 8. júlí.

Hér að neðan eru myndir bæði af rástímaáætlun og einnig mynd sem sýnir hvaða flokkar leika á hvaða dögum. Við minnum á að rástímaáætlunin er einungis áætlun og getur því breyst umtalsvert eftir skráningu. Smellið á myndirnar til að stækka þær