Meistaramóti Keilis 2023 lauk síðastliðinn laugardag. Mótið er ávallt stærsta mót sumarsins og á sama tíma það skemmtilegasta.

Mótið hófst sunnudaginn 2. júlí og voru það þeir Svavar Þrastarson og Þórður Þórðarsson sem slógu fyrstu teighöggin klukkan 7:00 um morguninn. Yfir næstu 7 dagana áttu 337 kylfingar eftir að hefja keppni og var leikið í 20 flokkum samtals sem gefur ágætis mynd á hversu umfangsmikið mótið er.

Veðrið var með ágætum fyrstu daga mótsins og svo tók við brakandi blíða síðustu dagana sem gerði mótið enn skemmtilegra. Mótið gekk vel í heildina og er það bæði kylfingum og starfsmönnum að þakka.

Í meistaraflokkunum voru það þau Anna Sólveig Snorrdóttir og Daníel Ísak Steinarsson sem báru sigur úr býtum.

Eftir fyrsta keppnisdag leiddi Anna Sólveg mótið ásamt Bryndísi Maríu, en svo þegar líða fór á mótið var Anna komin með þæginlega forystu og endaði á að vinna 5 högga sigur á Þórdísi Geirsdóttur

Daníel Ísak Steinarsson leiddi meistaraflokk karla frá degi 1 og var hann sá eini sem spilaði alla hringina undir 80 höggum. Hann endaði á að vinna öruggan 11 högga sigur á Vikar Jónasson.

Spennan var umtalsvert meiri í örðum flokkum. T.a.m var baráttan mikil í 50-64 ára flokki karla þar sem Ásgeir Jón Guðbjartsson vann 1 högga sigur á Kjartan Drafnarsson.

Eins og undanfarin tvö ár var keppendafjöldi skorinn niður fyrir lokadaginn og virðast kylfingar ánægðir með þessa nýjung þar sem það býður upp á aðra “keppni” í mótinu þar sem kylfingar eru að berjast um að komast í gegnum niðurskurðinn.

Keilir þakkar keppendum fyrir þáttökuna og öllum starfsmönnum og sjálfboðaliðum fyrir sitt ómetanlega hlutverk.

Úrslit í öllum flokkum koma hér að neðan með efstu 3 sætum. Öll úrslit eru aðgengileg hér.

Meistaraflokkur karla

  1. Daníel Ísak Steinarsson 294 högg
  2. Vikar Jónasson 305 högg
  3. Bjarni Sigþór Sigurðsson 306 högg

Meistaraflokkur kvenna

  1. Anna Sólveig Snorradóttir 317 högg
  2. Þórdís Geirsdóttir 322 högg
  3. Bryndís María Ragnarsdóttir 333 högg

1.flokkur karla

  1. Árni Geir Ómarsson 306 högg
  2. Haukur Ólafsson 311 högg
  3. Jón Ingi Jóhannesson 314 högg

1.flokkur kvenna

  1. Þóra Kristín Ragnarsdóttir 320 högg
  2. Kristín Sigurbergsdóttir 342 högg
  3. Hulda Soffía Hermannsdóttir 343 högg

2. flokkur karla

  1. Davíð Kristján Hreiðarsson 324 högg
  2. Hilmar Þór Ársælsson 332 högg
  3. Hallgrímur Ólafsson 334 högg

2. flokkur kvenna

  1. Guðrún Birna Snæþórsdóttir 349 högg
  2. Ólöf Ásta Farestveit 361 högg
  3. Dagbjört Bjarnadóttir 363 högg

3. flokkur karla

  1. Guðmundur Liljar Pálsson 344 högg
  2. Sveinberg Gíslason 346 högg
  3. Þorsteinn Kristján Ragnarsson 348 högg

3. flokkur kvenna

  1. Elna Christel Johansen 373 högg
  2. Kristín Sigríður Geirsdóttir 385 högg
  3. Sólveig Lilja Einarsdóttir 385 högg

4. flokkur karla

  1. Þorri Jensson 274 högg
  2. Gísli Vagn Jónsson 278 högg
  3. Svavar Þrastarson 289 högg

4. flokkur kvenna

  1. Sigurlaug Jóhannsdóttir 316 högg
  2. Herdís Rós Kjartansdóttir 324 högg
  3. Anna J. Eðvaldsdóttir 325 högg

50-64 ára karlar

  1. Ásgeir Jón Guðbjartsson 297 högg
  2. Kjartan Drafnarsson 298 högg
  3. Gunnar Þór Halldórsson 299 högg

65-74 ára karlar

  1. Hafþór Kristjánsson 252 högg
  2. Kristinn Þórir Kristjánsson 253 högg
  3. Tryggvi Þór Tryggvason 254 högg

65-74 ára konur

  1. Sólveig Björk Jakobsdóttir 294 högg
  2. Guðrún Guðmundsdóttir 301 högg
  3. Björk Ingvarsdóttir 306 högg

75 ára og eldri karlar

  1. Þórhallur Sigurðsson 251 högg
  2. Gunnlaugur Ragnarsson 258 högg
  3. Hallgrímur Hallgrímsson 259 högg

75 ára og eldri konur

  1. Sigrún Margrét Ragnarsdóttir 279 högg
  2. Inga Magnúsdóttir 291 högg
  3. Sigrún B Magnúsdóttir 307 högg

12 ára og yngri strákar

  1. Halldór Jóhannson 242 högg
  2. Jón Ómar Sveinsson 268 högg
  3. Arnar Freyr Jóhannson 278 högg

12 ára og yngri stelpur

  1. Sólveig Arnardóttir 371 högg
  2. Hrefna Líf Steinsdóttir 379 högg
  3. Brynja Maren Birgisdóttir 408 högg

13-15 ára strákar

  1. Óliver Elí Björnsson 302 högg
  2. Máni Freyr Vigfússon 309 högg
  3. Viktor Tumi Valdimarsson 312 högg

13-15 ára stelpur

  1. Elva María Jónsdóttir 357 högg
  2. Tinna Alexía Harðardóttir 369 högg
  3. Kristín María Valsdóttir 469 högg

16-18 ára strákar

  1. Borgþór Ómar Jóhannson 338 högg
  2. Andri Snær Gunnarsson 339 högg
  3. Sören Cole K. Heiðarsson 349 högg