12/03/2026

Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti

Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti

Það er okkur mikilvægt að aðstaðan í Hraunkoti sé ávallt eins góð og unnt er. Æfingasvæðið hefur notið sífellt meiri vinsælda, sem er afar jákvætt fyrir klúbbinn, en felur jafnframt í sér nýjar áskoranir sem við viljum mæta af fagmennsku og metnaði.

Nýjar mottur og endurbætt æfingaaðstaða

Nýverið skiptum við út öllum mottunum í skýlinu. Þetta er reglulegur hluti af viðhaldi aðstöðunnar, en þar sem fleiri nota svæðið nú en áður, þarf að endurnýja mottur oftar. Markmiðið er einfalt: að allir sem koma til okkar hafi góða, trausta og nútímalega æfingaaðstöðu. Nýjar gæðamottur eru mikilvægur hluti af því. Svo bíðum við eftir 50.000 nýjum æfingaboltum sem koma með vorinu.

Nýr TrackMan iO – loksins lausn á viðvarandi vandamáli

Fyrir tveimur árum keyptum við tvo TrackMan iO herma til að leysa af eldri búnaðinn. TrackMan iO var þá nýjung í vörulínu TrackMan og er sérstaklega hannaður fyrir innanhússnotkun. Ólíkt hefðbundna TrackMan 4, sem margir þekkja, eru iO hermarnir festir upp í loftið sem skilar nákvæmari mælingum og betri notendaupplifun.

Upp á síkastið höfum við þó átt í erfiðleikum með annan af hermunum. Við höfum fengið ábendingar frá viðskiptavinum um að Hermir 2 hafi ekki alltaf greint öll högg, sem hefur haft neikvæð áhrif á upplifun notanda. Góðu fréttirnar eru þær að fyrr í vikunni fengum við nýjan TrackMan iO hermi í staðinn. Hann er nú kominn í fulla notkun og við getum loksins sagt að þessum langvarandi vandamálum sé lokið. Við vonum að þessi uppfærsla skili öllum kylfingum áreiðanlegri, stöðugri og ánægjulegri upplifun.

Stórlækkuð verð – betri kjör fyrir alla kylfinga

Samhliða þessum uppfærslum höfum við ákveðið að lækka verðin í hermunum. Á sama tíma og hermagolf hefur hækkað víða undanfarin ár, viljum við fara aðra leið og skapa meira verðgildi fyrir okkar fólk. Markmiðið er að gera hermagolf að enn aðgengilegri og spennandi æfingakosti fyrir alla kylfinga yfir veturinn.

Eldri verðskrá

  • Fyrir kl. 14:00 virka daga – 4.160 kr.
  • Eftir kl. 14:00 virka daga og um helgar – 5.200 kr.

Ný verðskrá

  • Fyrir kl. 14:00 alla daga – 2.500 kr.
  • Eftir kl. 14:00 alla daga – 3.500 kr.

Velkomin í Hraunkot

Við vonum að enn fleiri félagsmenn nýti sér hina glæsilegu aðstöðu í Hraunkoti á komandi vikum og mánuðum. Við tökum einnig fagnandi á móti kylfingum frá öðrum klúbbum sem vilja njóta uppfærðrar aðstöðu og betri búnaðar.

Takk fyrir að vera með okkur á þessari vegferð. Við hlökkum til að bjóða ykkur upp á enn betri aðstöðu og skapa áfram frábæra upplifun fyrir alla kylfinga.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 11/03/2026
    Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
  • 10/03/2026
    Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
  • 24/02/2026
    Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
  • 18/02/2026
    Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
  • 18/02/2026
    Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis
  • 16/02/2026
    Keilisferð til Fairplay