Ronan Rafferty snýr aftur á Hvaleyrina
Ronan Rafferty snýr aftur á Hvaleyrina
Nú á mánudaginn mun gamall Keilisvinur snúa aftur á Hvaleyrarvöll, í þetta sinn ekki til að leika golf heldur til að láta gott af sér leiða til afrekskylfinga okkar. Rafferty mun halda fyrirlestur í Hraunkoti fyrir afrekskylfinga GSÍ og fjallar erindi hans um líf sem atvinnumaður í golfi og leiðin að takmarkinu.
Ronan Rafferty er mörgum kylfingum vel kunnur, hann hefur unnið alls 11 mót sem atvinnumaður, endað efstur á Volvo Order of Merit og leikið í Ryder liði Evrópu. Enn það var árið 1989 á Belfry vellinum þegar Bandaríkin og Evrópa skildu jöfn 14-14. Í dag starfar Rafferty sem sérfræðingur í golflýsingum og við ýmis opinber tækifæri við að kynna golf.
Rafferty lék í Canon mótinu á Hvaleyarvelli 2001 ásamt Reitief Goosen, í tilefni komu hans hefur Keilir bætt mótinu við á YouTube rás sína í fullri lengd og má nálgast myndbandið hér:
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
Stækkun golfskála Keilis
Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00



