Rúnar á enn einu frábæra skorinu
Rúnar á enn einu frábæra skorinu
Rúnar lék með Minnesota skólanum á Alister Mackenzie Invitational mótinu sem lauk 11. október.
Rúnar gerði sér lítið fyrir og lék á 64 höggum eða 7 höggum undir pari á fyrsta hring. Annan hringinn lék hann á 74 höggum og þann þriðja á 75 höggum og endaði á parinu í heildina eða í 40. sæti í einstaklingskeppninni.
Með þessum hring á Rúnar besta skor (61) og þriðja besta skor (64) í sögu skólans. Hver man ekki eftir hring frá Rúnari í fyrra upp á 61 högg þegar hann setti glæsilegt vallarmet.
Minnesota skólinn lék samtals á 17 höggum undir pari og enduðu Rúnar og liðsfélagar hans í 8. sæti.
Næsta verkefni hjá þeim félögum er í lok október.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis

