13/12/2019

Skötuveisla Keilis 2019

Skötuveisla Keilis 2019

Hin árlega skötuveisla verður haldin í golfskála Keilis 23.des. 2019 til styrktar æfingaferðar hjá börnum, ungmennum og afrekskylfingum Keilis.

Boðið verður upp á hádegismat í tveimur hópum kl. 11:30 og kl. 12:45. Vinsamlegast takið fram við bókun hvora tímasetninguna óskað er eftir.

Á borðstólnum er kæst skata fyrir byrjendur og lengra komna, saltfiskur og allt sem þarf til að koma þér í jólaskapið. Frítt kaffi en aðrir drykkir seldir á staðnum.Húsið opnar kl. 11:15 og er opið öllum meðan húsrúm leyfir. Miðaverð er 3.500 kr.

Vinsamlegast bókið tíma í síma Hraunkots 565-3361 eða á hraunkot@keilir.is

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 12/11/2025
    Frábært ár í Keili – spennandi verkefni framundan.
  • 21/10/2025
    Hvaleyrarvöllur lokar
  • 02/10/2025
    Keilisstelpur hefja leik á EM golfklúbba
  • 29/09/2025
    Æfingin verður ódýrari fyrir félagsmenn í Hraunkoti
  • 29/09/2025
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 22/09/2025
    Tilkynning frá bændum