06/12/2018

Skötuveisla Keilis á Þorláksmessu

Skötuveisla Keilis á Þorláksmessu

Hin árlega skötuveisla verður haldin í golfskála Keilis 23. des. 2018 til styrktar unglinga- og afreksstarfi.

Boðið verður upp á hádegismat í tveimur hópum kl. 11:30 og kl.12:45. Vinsamlegast takið fram við bókun hvora tímasetninguna óskað er eftir.

Á boðstólum er kæst skata fyrir byrjendur og lengra komna, saltfiskur og allt sem þarf til að koma þér í jólaskapið. Frítt kaffi en aðrir drykkir seldir á staðnum.

Húsið opnar 11:15 og er opið öllum meðan húsrúm leyfir. Miðaverð 3.500 kr.

Vinsamlegast bókið tíma í síma Hraunkots 565 3361 eða á hraunkot@keilir.is

Gleðileg Jól Unglinga- og afreksstarf Keilis

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis
  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili