17/08/2023

Skráningarfyrirkomulag þegar tekur að hausta

Skráningarfyrirkomulag þegar tekur að hausta

Þar sem að dagarnir styttast nú óðum ætlum við að breyta skráningarfyrirkomulagi okkar á rástímum frá og með föstudeginum 1.september til þess að koma til móts við okkar félaga þannig að sem flestir komast í golf.

Hægt verður að bóka sig á 9 holur og þá bæði á 1. og 10. teig

Rástímaskráning mun líta þá svona út:

Keilir Haust – Hraunið (fyrri 9) 07:00 – 21:50. Þeir kylfingar sem bóka sig á þessum tíma og vilja spila 18 holur þurfa þá að bóka sig á rástíma á 10. teig

Keilir Haust – Hvaleyrin (seinni 9) 07:00 – 21:50

Er það okkar von að þetta verði til þess að enn fleiri Keilisfélagar geti notið þess að spila golf á Hvaleyrarvelli þegar tekur að hausta.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 23/04/2026
    Staðan á völlunum
  • 23/04/2026
    Vel heppnaðar keppnis- og æfingaferðir
  • 23/03/2026
    Kynning á foreldraráði Keilis
  • 12/03/2026
    Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
  • 11/03/2026
    Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
  • 10/03/2026
    Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili