23/04/2026

Staðan á völlunum

Staðan á völlunum

Margir félagsmenn velta nú fyrir sér hvernig vellirnir séu að koma undan vetri.

Staðan er nokkuð góð og eru vallarstarfsmenn bjartsýnir á framhaldið.

Þó ber að hafa í huga að enn er frost í jörðu, sem tefur fyrstu vorverk og hægir á upphafi vaxtartímans.

Þrátt fyrir frostið lítur þetta þokkalega út og svo virðist sem flest öll svæði séu að koma vel undan vetrinum.

Hér fyrir neðan eru tvær myndir sem teknar eru með ársmillibili. Önnur er tekin 14. apríl 2025 og hin er tekin 16. apríl 2026. Myndirnar sýna að vellirnir eru aðeins seinna á ferðinni í ár miðað við í fyrra og er það meðal annars vegna frosts í jörðu. En horfur eru engu að síður góðar og vonandi verðum við farin að leika golf fyrr en síðar.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 23/04/2026
    Vel heppnaðar keppnis- og æfingaferðir
  • 23/03/2026
    Kynning á foreldraráði Keilis
  • 12/03/2026
    Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
  • 11/03/2026
    Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
  • 10/03/2026
    Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
  • 24/02/2026
    Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis