Golfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði óskar eftir að ráða öflugan aðila í starf vélvirkja.  Vélvirki ber ábyrgð á fyrirbyggjandi viðhaldi og viðgerðum á vélaflota klúbbsins.  Um framtíðarstarf er að ræða fyrir réttan aðila.   

Golfklúbburinn Keilir er einn stærsti golfklúbbur landsins.  4 heilsársstarfsmenn vinna við viðhald vallarins í viðbót við 13 sumarstarfsmenn.  Golfvöllurinn er þekktur fyrir góða umhirðu á meðal kylfinga og því mikilvægt að vélar klúbbsins séu ávalt í góðu ásigkomulagi svo hægt sé að viðhalda þeim gæðum sem meðlimir og aðrir kylfingar búast við.   

Starfssvið: 

  • Umsjón á viðhaldi alls vélaflota golfklúbbsins, frá smátækjum til bifreiða. 
  • Sér til þess að vélafloti klúbbsins sé starfshæfur og fullgildi allar öryggiskröfur.   
  • Innkaup á varahlutum og umsjón með varahlutalager 
  • Skipulag á útseldri brýningarþjónustu klúbbsins 
  • Umsjón með umhirðu á verkstæði og vélahúsi 

 

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Menntun á sviði bifvéla- eða vélvirkjunar, eða sambærilegt 
  • Góð reynsla og hæfni í málmsuðu 
  • Reynsla af viðhaldi glussadrifinna tækja, smávéla (tvígengismótorar), raftækja sem og venjulegra bifreiða 
  • Geta haldið bókhald um viðhald tækja og séð um pantanir á varahlutum  
  • Góð tölvukunnátta skilyrði sem og góð enskukunnátta 
  • Reynsla af brýningum á sláttukeflum er kostur en þó ekki nauðsynleg 
  • Getur mögulega sinnt nýsmíði á t.d. einföldum kerrum o.þ.h.  

 

Viðkomandi þarf að búa yfir mikilli hæfni í mannlegum samskiptum. Hafa hæfni til þess að vinna sjálfstætt og undir álagi.  Mjög mikilvægt er að viðkomandi sé snyrtilegur í umgengni og skipulagður í sinni vinnu.  

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsókn á bjarni@keilir.is 

Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá.