22/05/2017

Styrktarmót fyrir Axel

Styrktarmót fyrir Axel

Sunnudaginn 28. maí verður haldið á Hvaleyrarvelli styrktarmót fyrir Axel Bóasson og verður leikið tveggja manna Texas Scramble. Axel hefur verið að leika á Nordic Golf League mótaröðinni og hefur verið að gera vel undanfarið. Axel tók risastökk um daginn á heimslistanum og fór upp um 444 sæti eftir góðan árangur á Nordic Golf League.  Eins og fyrra verður Axel með púttleik á púttflötinni fyrir neðan golfskálann og kostar 1000 kr að taka þátt. Þar verða glæsileg gjafabréf frá Heimsferðum í boði. Í mótinu sjálfu verða einnig glæsileg verðlaun í boði og kostar 6000 kr á mann að taka þátt í því. Axel verður að sjálfsögðu á svæðinu allan tímann og um að gera að koma við og sýna honum stuðning. Skráning fer fram á golf.is og í síma 565-3360 og hvetjum við sem flesta að taka þátt og sýna stuðning.

AxelBmot

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 12/11/2025
    Frábært ár í Keili – spennandi verkefni framundan.
  • 21/10/2025
    Hvaleyrarvöllur lokar
  • 02/10/2025
    Keilisstelpur hefja leik á EM golfklúbba
  • 29/09/2025
    Æfingin verður ódýrari fyrir félagsmenn í Hraunkoti
  • 29/09/2025
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 22/09/2025
    Tilkynning frá bændum