Styrktarmót fyrir Axel
Styrktarmót fyrir Axel
Sunnudaginn 28. maí verður haldið á Hvaleyrarvelli styrktarmót fyrir Axel Bóasson og verður leikið tveggja manna Texas Scramble. Axel hefur verið að leika á Nordic Golf League mótaröðinni og hefur verið að gera vel undanfarið. Axel tók risastökk um daginn á heimslistanum og fór upp um 444 sæti eftir góðan árangur á Nordic Golf League. Eins og fyrra verður Axel með púttleik á púttflötinni fyrir neðan golfskálann og kostar 1000 kr að taka þátt. Þar verða glæsileg gjafabréf frá Heimsferðum í boði. Í mótinu sjálfu verða einnig glæsileg verðlaun í boði og kostar 6000 kr á mann að taka þátt í því. Axel verður að sjálfsögðu á svæðinu allan tímann og um að gera að koma við og sýna honum stuðning. Skráning fer fram á golf.is og í síma 565-3360 og hvetjum við sem flesta að taka þátt og sýna stuðning.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
Stækkun golfskála Keilis
Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00


