Sumarkveðja formanns Keilis
Sumarkveðja formanns Keilis
Í gær sá ég Hauk og Óla á fjórum fótum við 18. flötina í djúpum samræðum við grasið. Þessir góðu „Grasspekúlantar,“ hugsaði ég. Eftir greinilega góða yfirheyrslu hafa þeir í dag gefið út skemmtilegustu tilkynningu ársins: opnun vallarins verður 18. Maí.
Tilhlökkunin hefur verið mikil undanfarið og við kylfingar getum farið að hittast aftur á Hvaleyrinni, njóta útiverunnar, samverunnar og alls þess sem gerir golfið svona dýrmætt í lífi okkar.
Stækkun golfskála
Fram undan er spennandi tími í uppbyggingu okkar félags. Það er mjög ánægjulegt að bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar hafi á fundi sínum í gær samþykkt framkvæmdasamning samhljóma um stækkun golfskálans. Samningurinn gerir okkur kleift að hefja framkvæmdir strax í haust.
Við stefnum á að ganga hratt til verks, en gera má ráð fyrir að stækkunin taki um tvö ár. Þetta er stórt og mikilvægt skref fyrir félagið og mun bæta aðstöðu fyrir félagsmenn og gesti til framtíðar. Hér má sjá nokkrar myndir af þeirri hönnun sem unnið er að um þessar mundir.
Nýtt svæði fyrir golfvelli í Hafnarfirði
Einnig eru það mikil gleðitíðindi að í aðalskipulagi 2025-2040, sem bæjarstjórn samþykkti nýlega, er gert ráð fyrir 260 hektara svæði fyrir nýja golfvelli í samstarfi Keilis og Setbergs í upplandi Hafnarfjarðar. Þar felast spennandi tækifæri til áframhaldandi þróunar golfsins í bænum og skýr, metnaðarfull framtíðarsýn fyrir kylfinga í Hafnarfirði sem og víðar. Á kortinu hér að neðan má sjá svæðið rauðmerkt, staðsett á svæðum sem nefnast Snókalönd og Óbrinnishólar.
Keilir er meira en golfklúbbur. Hann er samfélag fólks sem deilir ástríðu fyrir leiknum og ánægjunni af því að vera saman. Það er mín einlæga von að sumarið framundan verði fullt af góðum stundum, gleði, jákvæðum anda og góðri þátttöku frá okkur öllum.
Ég hlakka til að hitta ykkur á vellinum í sumar og óska ykkur öllum fallegs, ánægjulegs og góðs golfsumars.
Með hlýjum kveðjum,
Guðmundur Örn Óskarsson
formaður Golfklúbbsins Keilis





