Úrslit Móa Media Open 2015
Úrslit Móa Media Open 2015
Glæsilegt Texas Scramble mót var haldið í dag á Hvaleyrarvelli í samvinnu við Móa Media. Glæsileg verðlaun voru boði og fullt af aukaverðlaunum. 77 lið spiluðu í dag í allskonar veðri, sumir blotnuðu meira en aðrir. Samhliða mótinu fengu allir sem luku leik að reyna sig í vippkeppni og var glæsilegt Guess úr í verðlaun frá Leonard. Allir keppendur fengu flottar teigjafir (FJ Golfhanski, Vikupassi í hreyfingu, Múslikraftur frá Freyju, Bíómiði í Laugarásbíó). Töluvert margir mættu á verðlaunaafhendingu til að freista þess að fá vinning, en dregið var um fjölda vinninga. Allir keppendur fengu svo mexíkóska kjúklingasúpu eftir hring. Sigurliðið í ár var skipað þeim Magnús Kári Jónsson GKG og Óttar Helgi Einarsson GKG, En þeir kölluðu sig Illaliðið og spiluðu á 59 höggum nettó.Golfklúbburinn Keilir þakkar Móa Media og keppendum fyrir góða samvinnu og skemmtilegan dag. Til að sjá öll úrslit, smellið á hlekkina fyrir neðan.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis


