Meistaramóti Keilis lauk í kvöld á Hvaleyrarvelli en meistaramótið er stærsta mót sumarsins hjá klúbbnum.  Anna Sólveig Snorradóttir og Rúnar Arnórsson eru klúbbmeistarar Keilis árið 2022.

Alls tóku 336 kylfingar þátt í ár og keppt var í tuttugu flokkum sem gefur ágæta mynd af því hversu umfangsmikið mótshaldið er. Mótið fór vel af stað en veðurguðirnir reyndust ekki hagstæðir þegar leið á vikuna. Þegar leika átti annan hringinn í seinni hluta mótsins á fimmtudaginn var gefin út gul viðvörun frá Veðurstofu Íslands. Mótsstjórn ákvað samt sem áður að hefja aðra umferðina á fimmtudaginn en leist ekki á blikuna og úr varð að önnur umferð var felld niður hjá öllum flokkum nema 1. flokki karla.

Veðrið hafði einnig áhrif á spilamennskuna hjá kylfingum á lokadeginum en umferðin raskaðist þó ekki.  Að öðru leyti gekk mótið afskaplega vel á heildina litið og er það bæði kylfingum sem og starfsfólki klúbbsins að þakka. Ekki er annað að sjá en að þátttakendur hafi verið sáttir að mótinu loknu.

Anna Sólveig vann afar sannfærandi sigur í meistaraflokki kvenna en hún lék á samtals á níu höggum yfir pari. Lék hún hringina þrjá á 72, 74 og 76 höggum. Fyrir lokadaginn var Anna með sjö högga forskot á Þórdísi Geirsdóttur en þegar uppi var staðið munaði sautján höggum á þeim eftir að Anna náði að skila inn býsna góðu skori í hvassviðrinu á lokahringnum. Þess má geta að Anna Sólveig fékk einn örn í mótinu en hann kom á 16. holunni á öðrum hringnum. Anna Sólveig varð einni klúbbmeistari Keilis árið 2019.

Spennan var á hinn bóginn mikil í meistaraflokki karla þar sem Rúnari Arnórssyni tókst að komast fram úr Birgi Birni Magnússyni á lokasprettinum ef þannig má að orði komast. Rúnar sigraði með tveggja högga mun en úrslitin réðust ekki fyrr en á síðustu holunni því fyrir hana voru Rúnar og Birgir jafnir. Þar fékk Rúnar par en Birgir fékk skramba. Var það eina holan í mótinu þar sem Birgir fékk meira en skolla en hann var efstur í meistaraflokki karla lengst af. Rúnar virtist ekki sérlega líklegur að loknum fyrsta hringnum sem hann lék á 73 höggum. Hann skilaði hins vegar inn besta skori mótsins á öðrum degi, 67 höggum og lék lokahringinn á 70 höggum. Samtals lauk hann leik á þremur undir pari. Rúnar fékk fugla á bæði 16. og 17. holu á lokahringnum og var því mjög sterkur á lokakaflanum. Rúnar varð einnig klúbbmeistari Keilis árið 2020.

Í mörgum flokkum var mikil spenna á lokakafla mótsins eins og oft áður. Til að mynda í flokki 50-64 ára hjá körlunum. Þar tókst gömlu kempunni Björgvini Sigurbergssyni að hafa sigur gegn Ólsaranum geðþekka Guðlaugi Rafnssyni en illa gekk að ná fram úrslitum. Voru þeir jafnir eftir þrjá hringi og þá tók við þriggja holu umspil. Voru þeir þá enn jafnir en Björgvin sigraði eftir bráðabana.

Eins og í fyrra var keppendafjöldi skorinn niður fyrir lokadaginn en þá var um nýbreytni að ræða í meistaramóti klúbbsins. Í ár voru nándarverðlaun í boði á 10. brautinni alla keppnisdagana.

Um leið og Keilir þakkar keppendum fyrir þátttökuna eru öllum verðlaunahöfum sendar innilegar hamingjuóskir.

Meðfylgjandi eru úrslit í Meistaramóti Keilis 2022 þar sem þrír efstu kylfingarnir í hverjum flokki eru nefndir. Öll úrslit eru aðgengileg á golfbox.

Meistaraflokkur karla
1. Rúnar Arnórsson 210 högg
2.  Birgir Björn Magnússon 212 högg
3. Bjarki Snær Halldórsson 216 högg

Meistaraflokkur kvenna
1. Anna Sólveig Snorradóttir 222 högg
2. Þórdís Geirsdóttir 239 högg
3. Marianna Ulriksen 257 högg

1.flokkur karla
1. Tómas Hugi Ásgeirsson 321 högg
2. Björn Kristinn Björnsson 322 högg
3. Ólafur Þór Ágústsson 325 högg

1.flokkur kvenna
1. Anna Jódís Sigurbergsdóttir 246 högg
2. Margrét Berg Theódórsdóttir 247 högg
3. Þóra Kristín Ragnarsdóttir 250 högg

2.flokkur karla
1. Bjarki Sigurðsson 248 högg
2. Sigurgeir M Sigurgeirsson 253 högg
3. Helgi Severino Elíasson 257 högg

2.flokkur kvenna
1. Heiðrún Jóhannsdóttir 281 högg
2. Guðrún Einarsdóttir 282 högg
3. Jóhanna Waagfjörð 285 högg

3.flokkur karla
1. Haukur Daníel Hrafnsson 271 högg
2. Bóas Jónsson 273 högg
3. Benedikt Sigurbjörnsson 275 högg

3.flokkur kvenna
1. Halldóra Björk Sigurðardóttir 298 högg
2. Sigrún Einarsdóttir 302 högg
3. Ólafía Hreiðarsdóttir 303 högg

4.flokkur karla
Höggleikur
1. Gísli Vagn Jónsson 262 högg
2. Benedikt Grétarsson 265 högg
3. Guðmundur Karl Arnþórsson 283 högg
Punktakeppni
1. Benedikt Grétarsson 129 punktar
2. Magnús Þór Eggertsson 129 punktar
3. Gísli Vagn Jónsson 123 punktar

4.flokkur kvenna
Höggleikur
1. Guðrún Bjarnadóttir 307 högg
2. Halla Sigurgeirsdóttir 307 högg
3. Bryndís Garðarsdóttir 316 högg
Punktakeppni
1. Guðrún Bjarnadóttir 114 punktar
2. Eygló María Björnsdóttir 113 punktar
3. Halla Sigurgeirsdóttir 109 punktar

50-64 ára karlar
Höggleikur
1. Björgvin Sigurbergsson 223 högg (eftir umspil og bráðabana)
2. Guðlaugur Rafnsson 223 högg
3. Gunnar Þór Halldórsson 236 högg
Punktakeppni
1. Sigurjón Ragnar Kárason 76 punktar
2. Guðlaugur Rafnsson 74 punktar
3. Kristján V Kristjánsson 68 punktar

65-74 ára karlar
Höggleikur

1. Tryggvi Þór Tryggvason 242 högg
2. Axel Alfreðsson 245 högg
3. Örn Bragason 245 högg
Punktakeppni
1. Sigurgeir Marteinsson 122 punktar
2. Örn Bragason 115 punktar
3. Sigurður P Sigumundsson 110 punktar

65-74 ára konur
Höggleikur

1. Sólveig B Jakobsdóttir 272 högg
2. Guðrún Á Eggertsdóttir 273 högg
3. Ágústa Sveinsdóttir 274 högg
Punktakeppni
1. Fríða A Sæmundsdóttir 116 punktar
2. Jenna O Pétursdóttir 116 punktar
3. Ágústa Sveinsdóttir 112 punktar

75 ára og eldri karlar
Höggleikur

1. Dagbjartur Björnsson 241 högg
2. Þórhallur Sigurðsson 241 högg
3. Stefán Jónsson 244 högg
Punktakeppni
1. Sigurður Örn Einarsson 116 punktar
2. Dagbjartur Björnsson 116 punktar
3. Gunnar Hjaltalín 112 punktar

75 ára og eldri konur
Höggleikur

1. Sigrún Margrét Ragnarsdóttir 269 högg
2. Inga Magnúsdóttir 274 högg
3. Edda Jónasdóttir 311 högg
Punktakeppni
1. Inga Magnúsdóttir 114 punktar
2. Auður Guðjónsdóttir 108 punktar
3. Sigrún Margrét Ragnarsdóttir 103 punktar

12 ára og yngri strákar
Höggleikur
1. Máni Freyr Vigfússon 238 högg
2. Halldór Jóhannsson 250 högg
3. Jón Ómar Sveinsson 298 högg
Punktakeppni
1. Halldór Jóhannsson 93 punktar
2. Máni Freyr Vigfússon 92 punktar
3. Jón Ómar Sveinsson 89 punktar

12 ára og yngri stelpur
Höggleikur
1. Elva María Jónsdóttir 291 högg
Punktakeppni
1. Elva María Jónsdóttir 92 punktar

13-15 ára strákar
Höggleikur
1. Hjalti Jóhannsson 309 högg
2.Víkingur Óli Eyjólfsson 351 högg
3. Óliver Elí Björnsson 361 högg
Punktakeppni

1. Ágúst Arnarson 119 punktar
2. Víkingur Óli Eyjólfsson 113 punktar
3. Hjalti Jóhannsson 105 punktar

13-15 ára stelpur
Höggleikur
1. Lilja Dís Hjörleifsdóttir 331 högg
Punktakeppni
1. Lilja Dís Hjörleifsdóttir 111 punktar

16-18 ára strákar
Höggleikur
1. Birkir Thor Kristinsson 319 högg
2. Andri Snær Gunnarsson 345 högg
3. Hákon Hrafn Ásgeirsson 351 högg
Punktakeppni
1. Birkir Thor Kristinsson 113 punktar
2. Andri Snær Gunnarsson 108 punktar
3. Þórir Sigurður Friðleifsson 107 punktar

 

Nándarverðlaun 10. holu
3.7
Gísli Vagn Jónsson 2.68m
4.7
Máni Freyr Vigfússon 1.45m
5.7
Haraldur Guðjónsson 0.55m
6.7
Kristján V Kristjánsson 0.53m
8.7
Ingvar Ásbjörn Ingvarsson 2.06m
9.7
Þóra Kristín Ragnarsdóttir 1.38m