13/05/2026

Við minnum á Hreinsunardaginn

Við minnum á Hreinsunardaginn

Við minnum á Hreinsunardaginn sem fer fram á morgun, fimmtudaginn 14. maí.

Áætlað er að hefja verkin klukkan 09:00 og vinna til 13:00. Að loknu hreinsunarstarfi verður boðið uppá súpu í golfskálanum og Ólafur Þór Ágústsson mun kynna nýja golfskála verkefnið og nýjungar á golfvellinum.

Þeir sem taka þátt í Hreinsunardeginum vinna sér inn þáttökurétt í Hreinsunarmótinu sem haldið verður sunnudaginn 17. maí.

Skráning fer fram með að fylla út þetta form

Við skráningu velja þáttakendur sér verkefni til að sinna á Hreinsunardeginum.

Þeir sem kjósa að tína rusl skipta með sér 3 brautum og fara út með plastpoka og tínur að vopni. Við biðlum til þeirra sem sinna sorptínslu að flokka sorpið í viðeigandi gáma sem staðsettir eru við áhaldahús Keilis.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis
  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili