05/05/2014

Tilboð á Sveinskotsvöll

Tilboð á Sveinskotsvöll

Fram til 20. maí verður frábært tilboð að gerast félagi á Sveinskotsvelli, Sveinskotsvöllur er glæsilegur níu holu völlur sem henntar byrjendum sem lengra komnum, til að gerast aðili að Hvaleyrarvelli sem er aðalklúbbsaðild að Keilir þurfa kylfingar að vera komnir með 34 í forgjöf og er því sérstaklega tilvalið fyrir byrjendur að byrja golfið á Sveinskotsvelli. Til 20. maí er ekkert inntökugjald í Sveinskotsvöll og með öllum aðildum er innifalið Platínu boltakort í Hraunkoti sem er glæsilegt golfæfingasvæði á Hvaleyrarvelli. Tilboðið kostar einungis 50,000 krónur

Eftirfarandi er innifalið í aðild að Sveinskotsvelli:

Platínuboltakort
Ekkert inntökugjald
9 vinavellir (Hella, Borganes, Suðurnes, Sandgerði, Vatnleysa, Geysir, Selfoss, Akureyri, Leynir)
Aðild að golf.is og gild forgjöf
Nýliðanámskeið (auglýst síðar)

Þegar forgjöf 34 er náð geta kylfingar uppfært aðild sína í Hvaleyrarvöll og er þá greiddur mismunur á 50,000 krónum og 85,500 krónum. Smelltu hér til að nýta þér tilboðið.

 

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 16/09/2025
    Úrslit ráðin í Bikarkeppni Keilis
  • 10/09/2025
    Vel heppnuð haustferð Keiliskvenna
  • 05/09/2025
    Fyrirkomulag rástímabókana nú þegar tekur að hausta
  • 01/09/2025
    Úrslit úr Fyrirtækjakeppni Keilis 2025
  • 28/08/2025
    Nýr golfvöllur í Hafnarfirði
  • 19/08/2025
    Fyrirtækjakeppni Keilis 2025