Meistaramót Keilis 2024

Skráning í Meistaramót Keilis 2024 hefst 27 júní n.k. Smellið hér til að skoða mótið

Fyrirkomulagið er með sama móti og fyrra, í völdum flokkum er niðurskurður eftir 3 hringi og komast 12 efstu og jafnir í hverjum flokki áfram og leika á “úrslitadeginum” laugardaginn 13. júlí.

Hér á síðunni eru myndir bæði af rástímaáætlun og einnig mynd sem sýnir hvaða flokkar leika á hvaða dögum. Við minnum á að rástímaáætlunin er einungis áætlun og getur því breyst umtalsvert eftir skráningu.

Smellið á myndirnar til að stækka þær.